fasteignasölur.is
Sólvallagata 8
1 af 44

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Sólvallagata 8 - Hrísey

Virkilega vel skipulagt og mikið endurnýjað 4 herbergja einbýlishús á einni hæð með sér þvottahúsi. Húsinu hefur verið vel við haldið bæði að innan sem utan en það stendur efst í byggðinni í Hrísey með ósnerta náttúru í bakgarðinum. Húsið er skráð 108,2 fm. samkvæmt HMS.

**Eldhús endurnýjað**
**Baðherbergi endurnýjað**
**Nýjir ofnar og ofnalagnir**
**Húsið og þak málað í sumar**


Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, geymslu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og þvottahús.

Forstofa er með flísum á gólfi.
Hol er opið og rúmgott með parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með parket á gólfi. 
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og fataskápar í hjónaherbergi sem hafa verið málaðir að utan. Við hlið hjónaherbergis er geymsla þaðan sem er lúga upp á loft. Möguleigi er að breyta því rými í fataherbergi. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru fallegar flísar á gólfi og á veggjum í kringum sturtu og innréttingu í kringum vask. Opnanlegt fag er á baðinu ásamt stórum glugga. 
Eldhús er endurnýjað, þar er virkilega falleg innrétting með stæði fyrir ísskáp, innbyggð uppþvottavél og gott bekkjarpláss. Öll tæki í eldhúsi fylgja með. 
Þvottahús og bakdyrainngangur er inn af eldhúsi. Þar hefur innrétting verið endurnýjuð að stórum hluta og með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn er á veggnum gegnt innréttingu. 

Hrísey er margrómuð fyrir fjölskrúðugt fuglalíf, góðar gönguleiðir, friðsæld, frábært útsýni um Eyjafjörð og góðar og reglulegar samgöngur milli lands og eyjarinnar. Með bátsferð tekur tæpan klukkutíma að ferðast milli Hríseyjar og Akureyrar en siglt er til og frá landi um Árskógssand. 

Í eyjunni er sundlaug, leik- og grunnskóli ásamt fjarvinnu- og fjarnámsaðstöðu í Hlein sem er fjarvinnumiðstöð eyjunnar og er staðsett við grunnskólann. 

Annað: 
-Auk hefðbundins fylgifjár fylgir með eigninni, tveir nýlegir ísskápar, innbyggð uppþvottavél og þvottavél og þurrkari geta einnig fylgt ásamt töluvert af innbúi sé áhugi fyrir því.
-Ljósleiðari
-Óeinangraður skúr á lóð
-Verönd snýr í suður í skjóli við húsið
-Húsið stendur innst og efst í botnlangagötu

Eftirfarandi viðhald eða endurnýjun hefur verið framkv. síðan 2023;
-Nýtt eldhús 
-Nýtt baðherbergi 
-Flísar í forstofu
-Allar innihurðir lakkaðar og skipt um hurðahúna
-Nýjir ofnar og ofnalagnir 
-Nýjir tenglar og rofar
-Öryggi í rafmagnstöflu endurnýjuð
-Ný borðplata og vaskur og hilla í þvottahúsi
-Listar settir á vegginn á holinu og veggfóður í eldhús
-Húsið og þakið málað í sumar 2026
-Nýr kjölur settur á þakið 2026

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Byggð
39.500.000 kr.365 þ./m²
+64,6% á 3 árum
3. ágúst 2023Þinglýstur kaupsamningur
24.000.000 kr.222 þ./m²
+118,2% á 5 árum
6. júní 2018Fyrsta sala
11.000.000 kr.102 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sólvallagata 8

630 Hrísey
TegundEinbýlishúsStærð108,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
39.500.000 kr.365 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2156361Fasteignamat29.550.000 kr.Brunabótamat54.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑