Opið hús 1. okt. kl. 18:00–18:30
1 af 29Um eignina
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur. Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og góðar samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman. Skoða heimasíðu verkefnisins.
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20.
Íbúð 0305 er glæsileg og vel skipulögð 3 herbergja íbúð á 3. hæð. Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, anddyri, þvottahús, gang og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Íbúðin er seld án bílastæðis. Kaupandi fær þó afnot af bílastæði í bílakjallara í tvö ár frá afhendingu. Hægt er að kaupa bílastæði með íbúðinni fyrir 7 milljónir króna til viðbótar við auglýst verð.
Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með rúmgóðu 37,3 fm alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda opið og samhangandi rými. Stórir gluggar tryggja góða birtu og skapa fallega tengingu við svalir íbúðarinnar.
Svefnherbergin eru tvö, þar af er hjónaherbergi 14,5 fm með aðgengi að rúmgóðu þvottahúsi inn af herberginu. Hitt svefnherbergið er 12,9 fm og baðherbergið er 4,8 fm.
Íbúðin er afhent með vönduðum Voke3 Stone Grey innréttingum. Suðursvalir íbúðarinnar eru 7,9 fm. (Athugið að myndir eru úr sýningaríbúð)
Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta stað Ártúnshöfða, með útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.
Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðu efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæðaheimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst tækifæri til að kaupa íbúð í nýjum borgarhluta Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er að hefjast.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Eirhöfði 7A íb.305
110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð110,4 m²Herbergi3
97.900.000 kr.887 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2534518Fasteignamat91.600.000 kr.Brunabótamat64.600.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 29 myndir
Upp ↑