fasteignasölur.is
Strandasel 11
Opið hús 1. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 24

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð og björt 43,30 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Strandasel 11, í Seljahverfi. Rúmgóðar svalir til suðvesturs. Næg bílastæði fyrir framan hús.

Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, svefnhol, baðherbergi og geymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Opið rými með eldhúsi og stofu. Eldhúsið er með hvítri innréttingu með eldavél og skápum.
Stofan er í opnu rými með eldhúsi. Stórir gluggar eru á allri suðurhlið íbúðar sem gefa mikla birtu. Parket á gólfi.
Útgengt út á rúmgóðar svalir til suðvesturs.
Svefnholið er með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi. Rennihurð milli svefnherbergis og stofu.
Baðherbergi er flísalagt með handlaug, speglaskáp, sturtuklefa og salerni.

Rúmgóð 7,8 fm geymsla fylgir íbúð á geymslugangi í sameign í kjallara.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús þar sem hver hefur sína vél, þurrkherbergi og vagna- og hjólageymsla.

Virkilega góð staðsetning miðsvæðis í Seljahverfinu, stutt að sækja þjónustu og verslun. Fallegar gönguleiðir í gegnum hverfið og útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
43.900.000 kr.1014 þ./m²
+18,6% á 4 árum
3. mars 2023Þinglýstur kaupsamningur
37.000.000 kr.855 þ./m²
+19,4% á 1 ári
3. nóvember 2021Þinglýstur kaupsamningur
31.000.000 kr.716 þ./m²
+37,8% á 3 árum
9. ágúst 2018Fyrsta sala
22.500.000 kr.520 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Strandasel 11

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð43,3 m²Herbergi1Baðherb.1
43.900.000 kr.1.014 þ./m²
Byggingarár1975InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2054619Fasteignamat39.050.000 kr.Brunabótamat24.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑