fasteignasölur.is
Orkureiturinn  D2 208
1 af 42

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Suðurlandsbraut, íbúð 208 er 3ja herbergja 104.1 fm íbúð með 9,6 fm geymslu í kjallara

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi/Þvottahús með sturtu. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara
Hjónasvíta með sér baðherbergi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II er 9,1 fm að innra máli og er með einföldum fataskáp.
Eldhúsið er með glæsilegum innréttingum frá GKS með eyju. Safír klassík 4.
Alrýmið er með gluggum suðvesturs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru 6,5 fm að stærð. Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 9,6 fm.
Innréttingaþema er Safír Klassík 4. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: dagrun@betristofan.is

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Orkureiturinn D2 208

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð104,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
104.900.000 kr.1.008 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2536338Fasteignamat39.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑