Um eignina
Forstofa er með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju með háfi yfir.
Stofa / borðstofa er opin við eldhús, parket á gólfi og útgengi á svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Barnaherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, vegghengdu innbyggðu salerni, sturtu, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Sérgeymsla er í sameign hússins.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Umhverfið: Stutt er að fara til að njóta náttúrunnar í fallegu umhverfi við Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Einnig er stutt á marga af stærri vinnustöðum miðborgarinnar auk tveggja háskóla.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Smyrilshlíð 2
Staðsetning
Allar 28 myndir
Upp ↑


























