fasteignasölur.is
Grundargarður 9
1 af 13

Um eignina

Lögeign kynnir eignina Grundargarður 9, íbúð 203, 640 Húsavík
Grundargarður 9, íbúð 203 er þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í steinsteyptu fjöleignarhúsi sem byggt var árið 1984. Íbúðin er 88,7 m² að stærð og þar af er um 6 m² sérgeymsla í kjallara.

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stofu og gang.
Nánari lýsing;

Forstofa er opin og með fataskáp. Flísar eru á golfi forstofu. Úr forstofu er gengið inn á baðherbergi, í eldhús og inn á herbergisgang.
Eldhús er með góðum borðkrók og viðarlitaðri upprunalegri innréttingu með dökkri borðplötu.
Baðherbergi er með sturtubaðkari, salerni og handlaug ásamt speglaskáp. Tengi er fyrir þvottavél og dökkar flísar eru á gólfi.
Herbergisgangur liggur að tveimur svefnherbergjum og eru fataskápar í báðum herbergjum.
Stofa er björt með gluggum til suðurs. Úr stofu er útgengi út á svalir sem snúa til suðurs.
Geymsla er í kjallara og tilheyrir íbúðinni.
Húsið er í góðu ásigkomulagi og var það málað fyrir nokkrum árum. Árið 2010 var endurnýjaður þakkantur ásamt rennum og niðurföllum. Sameign er snyrtileg og stigagangur teppalagður. Virkt húsfélag er í húsinu og eignaskiptayfirlýsing liggur fyrir.
Sameiginleg hjólageymsla og þvottahús eru á jarðhæð.

ATH! Tilboðsfrestur er til mánudagsins. 5. október 2026 til kl 16:00. Tilboð eru gerð hjá Lögeign fyrir þann tíma og verða tekin fyrir á næsta fundi Byggðarráðs Norðurþings þar á eftir. Seljandi áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.  

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Grundargarður 9

640 Húsavík
TegundFjölbýlishúsStærð88,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
Tilboð
Byggingarár1984InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2152780Fasteignamat34.600.000 kr.Brunabótamat48.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðarsbraut 26, 640Sími865-7430

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑