fasteignasölur.is
Lóugata 24
1 af 49

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
    
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt - Fullbúið - Glæsilegt 250,1 m2, einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Lóugötu 24 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 250,1 m2, þar af einbýli 202,2 m2 og bílskúr 47,9 m2. Eignin skiptist í anddyri með baðherbergi, sambyggða stofu, borðstofu og eldhús, sjónvarpshol, hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi, baðherbergi og þvotthús. Úr anddyri er innangengt í bílskúr/geymslu. Frábær staðsetning innarlega í botnlanga. Stutt í Helgafellsskóla sem er bæði grunn- og leikskóli. Stutt er í náttúruna og fallegar gönguleiðir.
Eignin afhendist fullbúnin með innréttingum frá Ballinglöv frá Birgisson. Harðparket, flísar og innihurðar eru frá Birgisson. Tæki á baðherbergjum er frá Tengi. Heimilistæki eru frá Siemens.

Hljóðdúkur í lofti með innbyggðri lýsingu, free@home hússtjórnarkerfi og loftskiptikerfi frá Ventum.
Bílaplan og gönguleið fyrir framan hús er hellulögð með snjóbræðslu að hluta. Hellulagt svæði er fyrir framan útgang úr stofu. Lóð er að öðru leiti þökulögð og afgirt með tveggja banda timburgirðingu. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Forstofa er með flísum á gólfi og fataksáp.
Stofa og borðstofa er í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á hellulagða verönd í suðurátt.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er bakaraofn, örbylgjuofn, spanhelluborð, innbyggður ísskápur, innbyggður frystiskápur, innbyggð uppþvottavél og helluborð með gufugleypi. Heimilistæki eru frá Siemens.
Sjónvarpshol er með parketi gólf og tengir saman öll svefnherbergin. 
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataksáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataksáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataksáp.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi og fataksáp.
Baðherbergi nr. 1 er flísalagt og með sturtu, vegghengdu salernig, handklæðaofni og innréttingu með handlaug.
Baðherbergi nr. 2 er flísalagt og með sturtu, vegghengdu salernig, handklæðaofni og innréttingu með handlaug.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu með skolvaski. Í innréttingu er þvottavél og þurrkari frá Siemens í vinnuhæð.
Bílskúr er með epoxý á gólfi og rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Er skráður 47,9 m2.


Annað:
Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf sem er fjölskyldufyrirtæki með yfir 40 ára reynslu af byggingu íbúðarhúsa. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri. Gera má ráð fyrir því að kaupandi þurfi að endurmála þegar byggingarefni hefur náð stöðugu ástandi. Kaupandi og seljandi fara yfir eignina í sameiningu við skil og sannreyna ástand hennar. Ef gallar eða vanefndir koma í ljós skal seljandi lagfæra við fyrsta tækifæri. Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofu seljanda og geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).


Hönnuðir og byggingaraðilar
Byggingaraðili: Byggingafélagið Bakki ehf, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ.
Arkitekt: Garðar Snæbjörnsson, GS-teiknistofa ehf.
Verkfræðihönnun: Burðarþol og lagnahönnun: Ferill ehf, Mörkin 1, 108 Reykjavík.
Raflagnahönnun: Lúmex ehf, Skipholt 37, 105 Reykjavík. 9.

Verð kr. 197.000.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Lóugata 24

270 Mosfellsbær
TegundEinbýlishúsStærð250,1 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
197.000.000 kr.788 þ./m²
InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2525384Fasteignamat178.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 49 myndir

Upp ↑