Um eignina
Miklaborg kynnir : Glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja hæð á annarri hæð við Mávahlíð 38 á vinsælum stað í Hlíðahverfinu í Reykjavík.
Skv. skáningu HMS er stærð eignarinnar 111,9 fm, þar af geymsla 5,9 fm. Með eigninni fylgir sér bílastæði við vesturhlið hússins sem rúmar tvo bíla og búið er að setja þar upp tvær hleðslustöðvar.
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Sameiginlegur inngangur með risíbúð, einstaklega falleg og snyrtileg sameign.
Komið er inn í forstofu og rúmgott hol sem tengir saman rými eignarinnar. Þar er lítið fataherbergi sem í dag er nýtt sem geymsla innan íbúðar. Stofa rúmgóð og björt með glugga til suðurs. Þaðan er útgengt út á svalir sem snú í suður út í garð. Gengið er inn í borðstofu frá stofu og holi, mjög rúmgóð og björt og hægt að nýta sem 3ja svefnherbergi. Eldhús með efri og neðri skápum. Skemmtileg innbyggð lýsing í efri skápum. Dökk granít borðplata með undirlímdum vaski. Gott rými fyrir eldhúsborð. Baðherbergi er flísalagt. Upphengt salerni og sturta. Falleg innrétting úr dökkum steini. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Tvö svefnherbergi. Bæði mjög rúmgóð og með góðum fataskáp.
Fallegt parket er á gólfum eignarinnar fyrir utan votrými.
Með eigninni fylgir 5,9 fm geymsla í kjallara.
Um er að ræða virkilega fallega og skemmtilega hæð á vinsælum stað í Hlíðunum þar sem einfalt er að bæta við þriðja svefnherberginu. Bílskúrsréttur fylgir eigninni skv. eignaskiptayfirlýsingu.
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Mávahlíð 38
Staðsetning
Allar 32 myndir
Upp ↑






























