fasteignasölur.is
Jöklafold 43
1 af 20

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

100 FM SÉRAFNOTAGARÐUR MEÐ UPPHITAÐRI HELLULÖGN - Mikið endurnýjað að innan sem utan

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu rúmgóða og bjarta 3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Jöklafold 43 í Foldahverfi, 112 Reykjavík.
Íbúðinni fylgir uþb. 100 fermetra sérafnotaréttur af garði, og er útgengt beint úr stofu út í garðinn. Hluti garðsins er hellulagður með hita undir hellum. Hægt er að bæta þriðja herberginu við í stofu. Húsið fór í umfangsmiklar framkvæmdir árið 2025. Það var múrviðgert og málað, þakkantur var endurnýjaður og skipt var um glugga þar sem þörf var á.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 106,2 fermetrar, þar af er sérgeymsla 8,5 fermetrar.

Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með söluyfirliti, teikningu, yfirlýsingu húsfélags ofl.

Aðal sölupunktar:
- Um 100 fm sérafnotaréttur af garði með útgengi úr stofu
- Hellulögð verönd með hitalögn undir hellum
- Upphituð stétt við inngang og tunnugeymslu
- Möguleiki á þriðja herberginu samkvæmt teikningu
- Eldhús með ofn og combiofn, innbyggðri uppþvottavél og borðkróki
- Mjög gott skápapláss
- Baðherbergi með bæði baðkari og sturtuklefa
- 8,5 fermetra sérgeymsla með glugga á sömu hæð og íbúðin
- Miklum framkvæmdum á húsinu árið lokið 2025
- Barnvænt hverfi, stutt í Foldaskóla, leikskóla, Grafarvogslaug og Egilshöll

Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, svefnherbergisgang og baðherbergi. Henni fylgir einnig sérgeymsla, sérafnotaréttur af garði og hlutdeild í sameiginlegu þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa / hol: Rúmgott hol með mjög góðu skápaplássi. Forstofuskápar tengjast eldhúsi. Parket á gólfi.
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting með tveimur ofnum og innbyggðri uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í samliggjandi rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á hellulagða verönd með hitalögn og þaðan út í uþb. 100 fermetra garð sem er sérafnotareitur íbúðarinnar. Hluti stofunnar var áður svefnherbergi og hægt að stúka af hebergi aftur.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Gott skápapláss og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sérsturtuklefi, góð innrétting, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél. Pípari hefur endurnýjað blöndunartæki í sturtu og baði.
Geymsla: 8,5 fermetra sérgeymsla með glugga á sömu hæð og íbúðin. Hún nýtist mjög vel.
Sameign: Þurrkherbergi er á hæð íbúðarinnar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameignin var máluð og teppalögð árið 2018. Upphituð stétt er við inngang og tunnugeymslu.
Lóð: Afgirt lóð með sameiginlegu leiksvæði og leiktækjum aftan við hús.

Framkvæmdir á húsinu árið 2025 (unnin var ástandsskýrsla áður en farið var í framkvæmdir):
Ytra byrði lagfært, múrviðgert og húsið málað
Þakkantur endurnýjaður að framan og yfirfarinn
Nýtt þakjárn og þakkantur á anddyri
Skipt um glugga í sameign og í sérgeymslu íbúðarinnar
Skipt um tvo glugga í íbúðinni, aðrir gluggar yfirfarnir og endurmálaðir
Skipt um hurðir á hjóla- og sorpgeymslu
Skipt um niðurfallsrör

Húsið: Jöklafold 43 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús byggt árið 1988, með sjö íbúðum og innst í botnlanga.
Staðsetning: Foldahverfi er gróið og barnvænt hverfi. Leikskólinn Sunnufold er í næsta nágrenni og Foldaskóli í göngufæri. Stutt er í Grafarvogslaug, íþróttasvæði Fjölnis, Egilshöll og þjónustukjarnana í Hverafold og Spönginni. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja um hverfið og meðfram voginum.

Björt og rúmgóð eign með stórum sérafnotagarði, möguleika á fjórða herberginu og nýlegum framkvæmdum á húsinu. Hún hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldur og þá sem vilja garð án þess að fara í sérbýli.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski,
löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli -  Verðmat fasteigna -  Lúxus fasteignir -  Greiðslumat.is  -  Nýtt: Kaupenda námskeið

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Jöklafold 43

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð106,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.752 þ./m²
Byggingarár1988InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2041923Fasteignamat76.800.000 kr.Brunabótamat57.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑