fasteignasölur.is
Arnargerði 35
1 af 19

Um eignina

Fasteignin við Arnargerði 35, Blönduósi ásamt tilheyrandi lóðarréttindum.
Um er að ræða gott og vel búið 104 fm hesthús, byggt árið 1994.
Leigulóð hússins er 678 fm.


Snyrtilegt og vel skipulagt hesthús sem býður upp á frábæra aðstöðu fyrir bæði hross og knapa. Í húsinu er hitaveita og þriggja fasa rafmagn. Hitablásari er í húsinu.
Húsið hýsir samtals 11 hesta í sjö stíum: þremur eins hesta stíum og fjórum tveggja hesta stíum. Á gólfum eru gúmmímottur, en stíurnar sjálfar eru með hallandi gólfi, niðurfalli og drenmottum. LED-lýsing er í öllum salnum og hlöðu.
Hlaðan er um 13 m² að stærð með tvöfaldri hurð sem auðveldar alla umgengni og vinnu. Gjafavagn fylgir með í kaupunum. Einnig er hnakkageymsla í húsinu.
Kaffistofan er með tveimur gluggum (þar af einu opnanlegu fagi), vaski og skápum 
Við húsið eru tvö góð útgerði sem snúa til vesturs og suðurs.
Húsið tengt við rotþró.

Húsið hefur fengið gott viðhald og er meðal annars búið að skipta um hluta af gleri. 

Húsið er laust til afhendingar.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Arnargerði 35

540 Blönduós
TegundHesthúsStærð104 m²
15.700.000 kr.151 þ./m²
Byggingarár1994InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2214482Fasteignamat5.288.000 kr.Brunabótamat21.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSæmundargata 1, 550Sími453-5900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑