fasteignasölur.is
EGILSBRAUT 7
1 af 6

Um eignina

Byr fasteignasala kynnir í einkasölu Egilsbraut 7, 740 Neskaupstaður.  í húsnæðinu er NESBÆR kaffihús og matsölustaður. 
Eignin er í leigu og selst með leigusamning til þriggja ára.
  Smellið hér fyrir staðsetningu. 

Húsið er timburhús byggt 1907. Eignin er skráð kaffistofa stærð 150.2 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: kaffihús/verslun, eldhús, lager, skrifstofa og þrjár snyrtingar.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: 
Tveir inngangar, annar á vesturhlið við útisvæði, hinn að sunnan verðu við gangstétt.  
Kaffihús/verslun, opið rými sem skiptist í verslunarhluta og veitingahluta.Veglegt afgreiðsluborð liggur í gegnum rýmið, möguleiki á að afgreiða á báðum svæðum. Hillur eru á bakvið afgreiðsluborð. 
Aftan við afgreiðsluborð er farið inn í eldhús, á lager, skrifstofu og starfsmannasnyrtingu. 
Kaffihús tekur 30-35 manns í sæti er setið er til borðs. Innbyggðir glerskápar fyrir bakkelsi, kökuskápur og goskælir. 
Verslununin selur í dag meðal annars gjafavörur og garn.
Eldhús er vel búið með öllum helstu tækjum, svo sem helluborði, ofnum, ískápum og uppþvottavél.  
Þrjár snyrtingar, tvö rúmgóð almennings salerni og ein starfsmanna snyrting.
Útisvæði, vestan við húsið er stórt malbikað plan, hefur verið nýtt sem útisvæði frá kaffihúsi, þar eru fjögur stór borð og útistólar, sæti fyrir allt að 20 manns.
Svæðið nýtist einnig sem bílastæði fyrir tvær bifreiðar. Hellulögð gangstétt er sunnan við húsið ásamt bílastæðum fyrir 2-3 bifreiðar.

Húsið skráð timburhús, byggingarár 1905, tvær hæðir og þakrými. Húsið er klætt að utan bárustáli og plastpanil, tvíhalla þak. Malbikað útisvæði er vestan við húsið. Hellulagt er að framanverðu við húsið. 
Bílastæði við húsið eru malbikuð sameiginleg, eitt merkt stæði er fyrir hreyfihamlaða. Lóðin er sameiginleg leigulóð frá Fjarðabyggð, lóðaleigusamningur til 50 ára frá 27. desember 2004.

Skráning eignarinnar hjá HMS:
Stærð: Kaffistofa 150,2 m². 
Brunabótamat: 60.500.000 kr.
Fasteignamat: 15.800.000 kr. 
Byggingarár: 1907.
Eignarhald:
Séreign: Rými 01.0101 Kaffibúð 150,2  m².
Sameign sumra: 01 Y1. 01.0104 Geymsla 12,2  m². 01 Y2 bílg.rými 9,1  m². 
Sameign allra: 01 X. 01. X Umferðarrými opið 1,4 m².
 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

EGILSBRAUT 7

740 Neskaupstaður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð150,2 m²Herbergi3Baðherb.3
51.500.000 kr.343 þ./m²
Byggingarár1907InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2169031Fasteignamat15.800.000 kr.Brunabótamat60.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangMiðvangur 2-4, 700 EgilsstaðirSími471-2858

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 6 myndir

Upp ↑