fasteignasölur.is
Rauðarárstígur 36
Opið hús 4. okt. kl. 13:00–13:30
1 af 21

Um eignina

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja endaíbúð í mikið endurnýjuðu húsi við Rauðarárstíg. Íbúðin er á miðhæð með góðum svölum til vesturs þaðan sem fallegt útsýni er til Hallgrímskirkju.

 
Íbúðin er 56,6 fm samkvæmt FMR. Með íbúðinni fylgir sérgeymsla í sameign sem er ekki í fm. tölu. Bílastæði á baklóð fylgir húsinu.   
 

Anddyri: Gengið er inn í parketlagt hol sem er miðrými íbúðarinnar.
Eldhús: Eldhúsinnrétting frá Axis og tæki frá Ormsson. Gengið út á svalir í vestur, nýleg svalahurð og gluggar. Dúkur með flísaáferð er á gólfinu. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og nýlegum rúmgóðum fataskáp frá Axis. 
Stofa: Skemmtilegt herbergi með bogadregnum gluggum. Hefur einnig verið notað sem svefnherbergi. Nýir gluggar í stofu. 
Barnaherbergi/skrifstofa: Herbergi með parketdúk á gólfi. 
Baðherbergi með nýrri innréttingu með steyptum sturtuklefa. Nýtt gólfefni að hluta.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í risi þar sem hver hefur sína vél.
Sérgeymsla er staðsett inn af sameign og er ekki er inn í fermetratölu íbúðar.


Framkvæmdir: 
2019: Skólplögn endurnýjuð 2019.
2016-2019: Húsið múrviðgert og steinað að utan.
2016-2019: Skipt var um glugga, svalahurðir og útidyrahurðir. 
2016-2019: Skipt hefur verið um glugga og gler á öllu stöðum í húsinu og fl.
2016: Þakið endurnýjað, skipt um sperrur að hluta, þakjárn, pappa, og þakglugga. Þakkantur endurnýjaður.
 

Mikið endurnýjað hús á góðum stað, bílastæði á baklóð. Stutt í alla þjónustu. Íbúðin er laus til afhendingar í des/jan.


Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.
Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.

Rauðarárstígur 36

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð56,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
59.900.000 kr.1.058 þ./m²
Byggingarár1939InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2010861Fasteignamat53.350.000 kr.Brunabótamat33.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑