fasteignasölur.is
Víkurás 3
Opið hús 4. okt. kl. 14:00–14:30
1 af 29

Um eignina

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli í Ásahverfinu í Árbæ að Víkurási 3. Stór sólpallur til suðurs og stæði í lokaðri bílageymslu fylgja eigninni. Nýleg eldvarnarhurð á íbúð sem skipt var um 2023. Húsið er steinsteypt og álklætt og því viðhaldslétt. Hiti í stétt við húsið. Frábær fyrstu kaup.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.    Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 80,6 fm og þar af er stæði í bílageymslu skráð 21,8 fm og geymsla 4 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 54.150.000 kr.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísar á gólfi. Góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með skápum.
Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu alrými með parket á gólfi. Útgegnt á góðan sólarpall til suðurs.
Eldhús með góðri u-innréttingu með góðu vinnuplássi og skúffum var endurnýjað 2019. Ofn í vinnuhæð og háfur yfir helluborði. Tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað 2019 og er flísalagt í hólf og gólf með "walk-in" sturtu, upphengt salerni, góða innréttingu og handklæðaofn.

Sérgeymsla íbúðar á sömu hæð í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla á sömu hæð í sameign.
Sameiginlegt þvottahús á 2. hæð sem er fyrir 1. og 2. hæð.
Sérstæði í lokaðri bílageymslu sem er við hliðina á húsinu. 
Rafhleðslustöð í leigu við stæðið og getur kaupandi tekið yfir þann samning.

Góð staðsetning og stutt í bæði leik- og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu. Stutt í stofnbrautir og fallegar gönguleiðir. Stutt í sund- og íþróttaaðstöðu/líkamsrækt.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Víkurás 3

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð80,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
59.900.000 kr.743 þ./m²
Byggingarár1985InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2053433Fasteignamat53.100.000 kr.Brunabótamat37.830.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑