fasteignasölur.is
Silfursmári 2 (10-06)
1 af 29

Um eignina

Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Silfursmára 2 íbúð 1006 fnr. 252-0289 - Stórglæsileg og vönduð íbúð með stórbrotnu útsýni. - 2 Stæði í bílakjallara fylgja íbúðinni. 

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 123,2 fm og þar af geymsla 8,7 fm og íbúðarhluti 114,5 fm. Húsið er byggt árið 2023. 

3D - SKOÐAÐU ÍBÚÐINA Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D


FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Aðkoma: Einstaklega snyrtileg sameign með fallegu efnisvali. Tvær lyftur. 

Stofa/borðstofa: Fallegt parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir sem eru yfirbyggðar að hluta. 

Eldhús: Parket á gólfi. Vönduð innrétting með steinborðplötum sem og á milli efri og neðri skápa. Spansuðuhelluborð með innbyggðum gufugleypi. Tveir ofnar frá Siemens. Innbyggður kæli/frystiskápur og uppþvottavél. Vínkælir er í innréttingu. 

Svefnherbergi: Parket á gólfum og fataskápar í báðum herbergjunum. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með vönduðum flísum. Sturtuklefi með glerþili. Innrétting með efri og neðri skápum og steinborðplötu. Upphengt salerni og handklæðaofn. 

Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð innrétting. Skolvaskur og snúrur. 

Bílastæðahús: 2 samliggjandi bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi fylgir íbúðinni. Bílastæðahúsið er einstaklega snyrtilegt. Kominn er rafhleðslustöð við stæðin.
Geymsla: Geymsla á jarðhæð sem er skráð 8,7 fm. 

Silfursmári 2 er einstaklega vönduð eign í 13 hæða vönduðu fjölbýli vel staðsett í hverfinu. Íbúðin er öll hin vandaðasta með fallegum gólfefnum, hærri innihurðum og vönduðum innréttingum. Kvarts-stein borðplötur. Aukin lofthæð. Loftskiptikerfi er í íbúðinni og gólfhiti. Fallegt útsýni er úr íbúðinni til þriggja átta. 


Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 

Silfursmári 2 (10-06)

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð123,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
123.900.000 kr.1.006 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2520289Fasteignamat102.000.000 kr.Brunabótamat86.790.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑