Um eignina
Miklaborg kynnir: Glæsileg og mjög rúmgóð 2ja herbergja íbúð með sérmerktu bílastæði á vinsælum stað við Grandaveg 42c. Íbúðin er á 2.hæð og er skv. skráningu HMS 76 fm að stærð og þar af er geymsla í kjallara 6,8 fm.
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Forstofa er mjög rúmgóð með góðum skápum.
Baðherbergið er flísalagt að hluta með flísum frá Parka og vönduðum HTH innréttingum, kvartsteinn á borði. Walk-in sturta, handklæðaofn, upphengt salerni og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara sem er í sérsmíðuðum HTH skáp. Þar er einnig skolvaskur.
Eldhús, borðstofa og stofa eru saman í glæsilegu og rúmgóðu alrými. Innrétting í eldhúsi frá HTH. Kvartsteinn er á borði. Ofnar og spanhelluborð frá AEG.
Úr alrými er gengið út á rúmgóðar 9,4 fm yfirbyggðar svalir. (telur ekki inn í birta fermetra eignarinnar)
Svefnherbergið er mjög rúmgott með góðu skápaplássi.
Parket er á gólfi eignarinnar fyrir utan votrými.
Eingnin er með gólfhitastýringu.
Geymsla í kjallara er 6,8 fm.
Sérmerkt stæði í bílakjallara.
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Grandavegur 42C
Staðsetning
Allar 18 myndir
Upp ↑
















