fasteignasölur.is
Dugguvogur 9
Opið hús 1. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 45

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Vorum að fá í sölu virkilega skemmtilega vel skipulagða íbúð á 4.hæð með fjórum svefnherbergjum ásamt stæði í bílageymslu. 
Um er að ræða 126,3 fm íbúð á fjórðu hæð ásamt stæði merktu 06-B08
Húsið sem er byggt af Þ.G. verk 2023 er klætt með álklæðningu. 

Skipting eignar: Anddyri. fjögur svefnherbergi, eldhús, stofa/borðstofa, baðherbergi, þvottahús, svalir, geymsla, 


Forstofa er rúmgóð með fataskáp. 
Eldhús með fallegri drappaðri innréttingu, eyja með rafmagnsinnstungum, Bora spanhelluborði með kröftugum háfi, tveir ofnar og fallegur steinn á borðum. 
Stofa og borðstofa tengjast eldhúsi í opnu rými, úr borðstofu er gengið út á suður svalir. 
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi. 
Herbergi II: Rúmgott með innbyggðum fataskáp
Herbergi III: Rúmgott með fataskáp
Herbergi IIII: Rúmgott með fataskáp
Baðherbergi er flísalagt, walk in sturta með glerskilrúmi, ljós innrétting og handklæðaofn.
Þvottahús er inn af baðherbergi, vélar í vinnuhæð, innrétting með skúffum.  
Geymsla í sameign er virkilega stór geymsa sem bíður upp á möguleika að útbúa vinnurými eða hobbý herbergi. Geymslan er  22,4 fm. 
Bílastæði í lokuðum bílakjallara merkt 06-B08
*** Gardínur, ljós og snertilýsing fylgja ***

Teppalögð sameign. Lyfta. 
Sameign er afar snyrtileg, nýmálaður stigagangur, sjálfvirk hurðaopnun og lyfta. 
Sameiginlegur snyrtilegur inngarður með leiktækjum.
Húsfélag er í höndum Eignaumsjónar, húsfélagsgjöld eru 25.000,- á mánuði. 


Falleg og vel staðsett íbúð í göngufæri við verslun, þjónustu og náttúru Elliðaárvogsins. 

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Dugguvogur 9

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð126,3 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
94.900.000 kr.751 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2516613Fasteignamat93.450.000 kr.Brunabótamat89.870.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑