fasteignasölur.is
Asparfell 4
1 af 13

Um eignina

101 Reykjavík fasteignasala kynnir í einkasölu:  Asparfell 4 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í lyftuhúsi. Öll helsta þjónusta og afþreying í göngurfæri. Skólar, leikskólar, íþróttir og sund. Elliðaárdalurinn er skammt undan.

Lýsing eignar: Íbúð merkt 01-03.
Forstofa parketlögð.
Eldhús gegnt forstofu, flísalagt gólf, eldavél og vifta. Efri og neðri skápar. Pláss er fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa parketlögð og björt með útgengi að rúmgóðum svölum sem snúa að sameiginlegum garði húsa.
Svefnherbergi dúklagt gólf og upprunalegur fataskápur.
Baðherbergi flísalagt gólf og veggir, upphengt saleri og sturtuklefi. Baðinnrétting með handlaug og skáp undir. Speglaskápur með lýsingu fyrir ofan handlaug.

Geymsla er á jarðhæð.
Sameiginlegt þvottahús er á íbúðarhæð.
Sameiginlegur garður og bílastæði.

Skipt hefur verið um ofna í íbúð.
Umræður eru í húsfélagi um að endurnýja lyftu í húsi.


Nánari upplýsingar veitir Kristín Sigurey Sigurðardóttir , í síma 820-8101, tölvupóstur kristin@101.is.
Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is 

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 

 

Asparfell 4

111 Reykjavík · Berg/Hólar/Fell
TegundFjölbýlishúsStærð63,3 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
51.900.000 kr.820 þ./m²
Byggingarár1973LyftaJáFasteignanúmerF2051790Fasteignamat45.050.000 kr.Brunabótamat34.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHáaleitisbraut 58-60, 108 ReykjavíkSími511-3101

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑