fasteignasölur.is
Grænásbraut 1219
1 af 70

Um eignina

Rúmgóð og björt 4ra til 5 herbergja íbúð á 3. hæð (efstu hæð) við  Grænásbraut 1219 í Reykjanesbæ. Þrjú rúmgóð svefnherbergi en hægt er að bæta fjórða herberginu við. Tvö baðherbergi eru í eigninni. Þvottahús er innan íbúðar. Tvær geymslur. Þakið hússins hefur verið endurnýjað. Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2023. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 145,0 fm. og þar af er geymsla 4,5 fm. 


Nánari lýsing eignar
Forstofa með góðum fataskáp og parket á gólfi. 
Geymsla er inn af forstofu með hillum og dúk á gólfi.
Eldhús mjög rúmgott með snyrtilegri innréttingu, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél og dúkur á gólfi. Rúmgóður borðkrókur með parketi á gólfi. 
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Hægt er að bæta við herbergi. Útgengt er úr stofunni út á stórar svalir.
Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. 
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi. Baðherbergi er innaf hjónaherbergi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi með sturtu, snyrtileg innrétting og dúkur á gólfi.
Barnaherbergi eru tvö í íbúðinni með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi (aðal) með baðkari  með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting og dúkur á gólfi. 
Þvottahús er rúmgott með hillum og skáp og dúkur á gólfi.
Geymslur eru tvær sem fylgja íbúðinni, önnur staðsett innan íbúðar og hin á stigagangi á sömu hæð og íbúðin.  

Hjólageymsla er í sameiginlegu rými við inngang hússins. 

Múrviðgerðir og endurmálun að utan árið 2021.
Þakið, þakkantur og svalahandrið máluð.
Ofna- og neysluvatnslagnir með lokuðu kerfi.

Einstaklega skemmtileg og rúmgóð eign með möguleik á að bæta við svefnherbergi. 
Frábært hverfi fyrir barnafólki, stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, verslanir og afþreyingu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is



 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Grænásbraut 1219

262 Reykjanesbær · Reykjanes
TegundFjölbýlishúsStærð145 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
54.900.000 kr.379 þ./m²
Byggingarár1992InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2304780Fasteignamat56.250.000 kr.Brunabótamat74.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 70 myndir

Upp ↑