fasteignasölur.is
Baugakór 16
Opið hús 4. okt. kl. 14:30–15:00
1 af 37

Um eignina

Vernharð Þorleifsson lfg. og Magga Gísladóttir lgf. kynna til sölu:
Mjög falleg 5 herbergja efri hæð með sérinngangi ásamt bílskúr í fjórbýlishúsi við Baugakór í Kópavoginum. Fjögur svefnherbergi, sérgeymsla með glugga og þvottahús innan íbúðar.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál íbúðarinnar 165,2 fm þar af er íbúðin 139,8 fm og 25,4 fm bílskúr eða samtals: 165,2 fm.
Einstaklega vel staðsett íbúð í götu ársins 2015 í Kópavogi. Staðsetning fyrir fjölskyldufólk getur varla verið betri. Grunnskólinn og leikskólinn er við hliðina og um 200 metrar í íþróttamiðstöðina í Kórnum.
Allar frekari upplýsingar veita Vernharð í síma 699 7372/venni@remax.is og Magga í síma 698 7494/magga@remax.is
Nánari lýsing eignar: Sérinngangur. Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp.
Á vinstri hönd við inngang er sérgeymsla með glugga sem er auðveldlega hægt að nýta sem t.d skrifstofu.
Frá forstofu er hol. Fjögur svefnherbergi, fataskápur í þremur herbergjanna en fataherbergi innaf hjónaherbergi. Fataherbergi er með mjög góðu skápaplássi með bæði lokuðum skápum og opnum hillum.
Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús með fallegri innréttingu.
Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, innrétting, baðkar með sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Þvottahús með innréttingu.
Gólfefni: flísar á forstofu, geymslu, holi, eldhúsi og baðherbergi. Eikar planka parket á svefnherbergjum og stofu.
Eigninni fylgir eins og áður sagði 25,4 fm bílskúr og sameiginleg hjólageymsla. 

Þetta er mjög björt og einstaklega falleg og stílhrein eign þar sem umgengni og viðhald er til fyrirmyndar. Eins og áður segir er örstutt stutt í leikskólann Kór, Baug og Hörðuvallaskóla.
Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk. 
Allar frekari upplýsingar veita Vernharð í síma 699 7372/venni@remax.is og Magga í síma 698 7494/magga@remax.is
 

Baugakór 16

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð165,2 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
129.500.000 kr.784 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2283271Fasteignamat98.850.000 kr.Brunabótamat84.770.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑