fasteignasölur.is
Dalsel 8
Opið hús 5. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 25

Um eignina

Andri Freyr Halldórsson lgfs - Lind kynna til sölu:
Mikið endurnýjuð, rúmgóð og vel skipulögð 90.1 fm 3ja herbergja íbúð í snyrtilegu fjölbýlishúsi.
Góð staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, sundlaug og verslanir.


Skráð stærð eignar skv. FMR er 90.1 fm. Íbúðin er merkt 00-01. 

Nánari upplýsingar veita:
Arinbjörn Marinósson lgfs  // 822-8574 // ARINBJORN@FASTLIND.IS
Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS


*Frábær fyrstu kaup.
*Rúmgóð íbúð.
*Góð staðsetning í Seljahverfi. 


Eignin skiptist í:
Andyri, forstofugang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.

Nánari lýsing eignar:
Andyri: komið er inn í parketlagða forstofu.
Eldhús: parketlagt eldhús með nýlegri innréttingu og borðkrók, nýr bökunarofn.
Stofa & borðstofa: rúmgóð stofa/borðstofa með parket á gólfi.  
Baðherbergi: baðherbergi er með flísum á gólfi, nýlegri innréttingu og sturtu.
Hjónaherbergi: rúmgott og parketlagt hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Þvottahús/geymsla: nýleg innrétting, nýlegur skolvaskur, tengi fyrir þvottavél & þurkarra, málað gólf.
Svefnherbergi 2: með harðparketi á gólfi og fataskáp. 
Sameign: Sameiginlegri vagna-hjólageymslu og þvottahús.

*Nýlegar lagfæringar á íbúð samkvæmt seljanda: 
Íbúðin er nýmáluð, að undanskildu baðherbergi.
Ný baðherbergisinnrétting og speglaskápur með ljósum, nýlegur vaskur og blöndunartæki.
Nýjar innihurðar 2017.
Ný innrétting í þvottahúsi og vaskur, gólf nýmálað.
Ný ledljós í íbúðinni sem fylgja með. Þrjú ljós eru með litaskiptingu. Ljós í svefnherbergi með dimmer og fjarstýringu.
Nýjir reykskynjarar.
Nýjir rafmagns tenglar og slökkvarar (frontar).

Dalsel 8 er á góðum og rólegum stað í Seljahverfi í Breiðholti. Í grónu og fjölskylduvænu íbúðahverfi með sterkri hverfiskennd. Í næsta nágrenni eru fallegar göngu- og hjólaleiðir, m.a. í Elliðaárdal, ásamt leiksvæðum og grænum svæðum sem gera umhverfið sérstaklega þægilegt fyrir fjölskyldur. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, íþróttamannvirki, verslanir og Mjóddina með fjölbreyttu þjónustuframboði. Góðar tengingar eru við stofnbrautir og almenningssamgöngur sem tryggja greiðan aðgang að miðborginni og öðrum hverfum Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veita:
Arinbjörn Marinósson lgfs  // 822-8574 // ARINBJORN@FASTLIND.IS
Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS


Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. 
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN. 


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dalsel 8

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð90,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
61.000.000 kr.677 þ./m²
Byggingarár1974InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2055836Fasteignamat56.300.000 kr.Brunabótamat44.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑