fasteignasölur.is
Smyrilshlíð 15
1 af 26

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega nýlega 2ja herbergja 74,9 fm íbúð á 2 hæð í glæsilegu nýlegu lyftuhúsi (2020) á þessum eftir sótta stað í Rvk. Að auki fylgir gott stæði í bílastæðahúsi í kjallara.  Örstutt í miðborgina, stofnbraut ofl. Íbúðin er sérlega vönduð að allri gerð, aukin lofthæð, rúmgóðar svalir og sér verönd (sér afnotaréttur) Sér inngangur.
Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Frábær staðsetning. Laus fljótlega.


Eignin skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi/þvottaherbergi, stofa, eldhús, svefnherbergi, geymsla (8 fm) innfalið í stærð eignar. 

Sér inngangur úr lokuðum inngarði, íbúðin er með timburverönd með skjólgirðingu, (sér afnotaréttur) . Forstofa með vönduðum skáp, glæsilegt eldhús með vandaðri innréttingum og tækjum, en eldhúsið er inni í stofurýminu, stofan er björt og falleg, útgengt á s-svalirnar.
Rúmgott svefnherbergi með vönduðum skáp, glæsilegt rúmgott baðherbergi með vandaðri innréttingum og tækjum, flott og rúmgóð sturtuaðstaða, handklæðaofn, flísar í hólf og gólf. 

Vandað harðparket á gólfum. Gólfsíðir gluggar í stofu/eldhúsi.

Gott bílastæði er í bílakjallara hússins. 


Innréttiingar eru dökkar, frá JKE með Quartzborðplötum, helluborði og bakaraofni frá Miele og blöndunartæki frá Tengi. Lýsing hönnuð af Lúmex. 

Sér geymsla (8 fm)  í snyrtilegri sameign auk góð hefðbundin sameign. 
Garður í sameign er glæsilegur og skjólgóður. 

Þetta er vönduð og glæsileg nýleg eign sem vert er að skoða frekar ! 

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Smyrilshlíð 15

102 Reykjavík · Vatnsmýri
TegundFjölbýlishúsStærð74,9 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
76.500.000 kr.1.021 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2509126Fasteignamat158.000.000 kr.Brunabótamat108.080.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑