fasteignasölur.is
Þorrasalir 5-7
Opið hús 6. okt. kl. 17:30–18:00
1 af 41

Um eignina

Rúmgóð og björt  3ja herbergja útsýnisíbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi með rúmgóðum svölum í suðvestur og stæði í bílageymslu. Einstaklega fallegt útsýni er úr íbúðinni. Sér þvottahús er innan íbúðarinnar.  Húsið var nýlega málað að utan og er allt hið snyrtilegasta.

Eignin er skráð alls 94,9 fm. og þar af geymsla 8,5 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu íbúðarinnar. 

Nánari lýsing eignar:
Forstofa er rúmgóð með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Eldhús er opið við stofu með L-laga innrétting með efri og neðri skápum, innbyggð uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og ofn í vinnuhæð.  Parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa er björt með útsýnisglugga og parket á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar suðvestur svalir með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu með vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla íbúðarinnar er á jarðhæð hússins.                                 
Stæði í bílageymslu er merkt íbúðinni. Búið er að leggja rafmagn fyrir rafhleðslustöð.

Í sameign er rúmgóð vagna- og hjólageymsla. 

Hér er um að ræða frábæra staðsetningu í Salarhverfi Kópavogs með góðar almenningssamgöngur. Stutt er í helstu þjónustu og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt góðri íþróttaaðstöðu og sundlaug. Fallegar göngu- og hjólaleiðir  eru við fjölbýlið og golfvöllurinn við Leirdal rétt við húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is


                               


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Þorrasalir 5-7

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð94,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
78.900.000 kr.831 þ./m²
Byggingarár2013InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2325482Fasteignamat77.850.000 kr.Brunabótamat59.030.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑