Um eignina
Miklaborg kynnir: Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð við Lágaleiti 1 á eftirsóttum stað í Reykjavík. Eignin er skráð 62,6 fm, þar af er íbúðarrými 46,5 fm og rúmgóð sérgeymsla 16,1 fm. Sérmerkt stæði í bílageymslu og 5,1 fm svalir sem snúa í átt að inngarði. Fjölbreytt verslun og þjónusta í næsta nágrenni. Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
Nánari lýsing
Forstofa: Komið inn í forstofu frá sameign. Parket á gólfi. Hvítir forstofuskápar.
Eldhús: Hvít innrétting með helluborði, bakaraofni, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Opin og björt stofa. Parket á gólfi. Gott skápapláss. Útgengt út á svalir sem snúa í átt að inngarði.
Svefnherbergi: Frá stofu er gengið inn í svefnherbergi. Parket á gólfi og einnig útgengt út á svalir.
Baðherbergi: Hvít innrétting með vaski. Spegill fyrir ofan vask. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi. Sturta. Flísalagt gólf og hluta að veggjum.
Sameign er snyrtileg. Sérgeymsla íbúðar er staðsett í kjallara, 16,1 fm að stærð. Einnig er hjóla- og vagnageymsla í sameign. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Lóðin er fullfrágengin með leiktækjum og hjólaskýli.
Lágaleiti 1 er á einstaklega góðum og miðsvæðis stað í Reykjavík þar sem stutt er í fjölbreytta verslun, þjónustu, afþreyingu og samgöngur. Í næsta nágrenni er jafnframt veitingastaðurinn Yndisauki.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
Lágaleiti 1 (206)
Staðsetning
Allar 27 myndir
Upp ↑

























