fasteignasölur.is
Bergsskarð 1.A íb.201
1 af 33

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða vel skipulagða fjögurra herbergja 92.2 fm endaíbúð á annari hæð við í Bergsskarð 1.A í Hafnarfirði og eru gluggar á þrjá vegu í íbúð.
Með íbúðinni er stæði í lokaðri bílgeymslu, lyfta er í húsinu og norð-austur svalir.
Örstutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði og þjónustu.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 82.9 fm merkt 01-02-01 og geymsla er 9.3 fm merkt 01-00-20, samtals 92.2 fm að stærð, að auki er sérmerkt bílastæði með íbúð merkt 01.B01.

Bókaðu skoðun hjá fasteignasölum eða fáðu frekari upplýsingar eignir@landmark.is:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
Freyja Rúnarsdóttir lögg.fasteignasali s. 694-4112 eða freyja@landmark.is
Monika Hjáltýmsdóttir lögg.fasteignasali s. 823-2800 eða monika@landmark.is
Sigurður Rúnar lögg.fasteignasali s. 896-2312 eða ss@landmark.is
Júlíus Jóhannsson lögg.fasteignasali s. 823-2600 eða julius@landmark.is
Andri Sigurðsson lögg.fasteignasali s. 690-3111 eða andri@landmark.is


FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi m/þvottaaðstöðu, sérgeymslu og bílastæði í lokaðri bílgeymslu. 

Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol með innbyggðum fataskápum.
Stofa/borðstofa er eitt opið og bjart rými með gluggum á tvo vegu og er útgengt á svalir úr stofu til suð-austurs.
Eldhús er með snyrtilegri dökkri innréttingu með efri og neðri skápum, eldhúseyja með helluborði og er gufugleypir ofan við eyju, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu.
Svefnherbergin eru þrjú og eru fataskápar í öllum herbergjum sem að ná uppí loft.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, hlaðin Walk-in sturtuklefi, upphengt salerni, snyrtileg innrétting undir baðvask og speglaskápur á vegg, handklæðaofn.
Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Sérgeymsla er í kjallara og stæði í lokaðri bílgeymslu.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð við hlið inngangs í hús.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Bergsskarð 1.A íb.201

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð92,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
69.500.000 kr.754 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2503763Fasteignamat71.900.000 kr.Brunabótamat63.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑