fasteignasölur.is
Snæfríðargata 5
Opið hús 6. okt. kl. 16:00–16:30
1 af 24

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun og Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s: 896-6160 / erla@landmark.is kynna:
2 herbergja 66.8 m2 íbúð á hæð við í Snæfríðargata 5

Mjög falleg og björt 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í nýlegu, tvílyftu fjölbýlishúsi í Helgafellslandi í Mosfellsbæ. Íbúðin er vel skipulögð með rúmgóðum suðursvölum og fallegu útsýni, meðal annars yfir Úlfarsfell. Eign sem hentar fyrstu kaupendum sérlega vel.

Nánari lýsing:
Forstofa
er flísalögð með fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu og opnu alrými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar svalir sem snúa til suðurs með fallegu útsýni til suðurs, meðal annars yfir Úlfarsfell.
Svefnherbergi er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu, þvottaaðstöðu og glugga.
Geymsla fylgir íbúðinni og er staðsett á fyrstu hæð hússins. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er einnig í húsinu.
Bílastæði við húsið eru sameiginleg.

Staðsetning:
Eignin er vel staðsett í Helgafellslandi, fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbæ. Stutt er í skóla og leikskóla auk fjölbreyttra útivistarmöguleika og fallegrar náttúru.
Falleg, björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með stórum suðursvölum og góðu útsýni.

Íbúðin er laus skv. samkomulagi.

Nánari upplýsingar um eign:
Erla Friðriksdóttir aðstoðarmaður fasteignasala s. 896-6160 eða erla@landmark.is

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Snæfríðargata 5

270 Mosfellsbær
TegundFjölbýlishúsStærð66,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
63.900.000 kr.957 þ./m²
Byggingarár2018InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2366572Fasteignamat58.100.000 kr.Brunabótamat41.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑