fasteignasölur.is
Norðurgata 45 - 201
Opið hús 5. okt. kl. 16:15–16:45
1 af 35

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Norðurgata 45 - 201

Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi á Akureyri. Eignin er samtals 188,4 fm. að stærð, þar af er 25,2 fm. stakstæður bílskúr norðvestan við húsið.

Íbúðin skiptist í forstofu og bjartan stigagang, borðstofu, eldhús og búr, stofu, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús og kjallara með tveimur geymslum.

Gengið er inn um sérinngang þar sem komið er inn í rúmgóða forstofu. Úr forstofu er gengið inn í stórt þvottahús þar sem einnig er annar sérinngangur inn í íbúðina. Úr þvottahúsi er gengið niður í kjallara þar sem eru tvær geymslur.
Úr forstofu er gengið upp skemmtilegan stiga upp í íbúðina en með stórum glugga til austurs myndast góð birta í rýminu. Komið er upp á stigapall þar sem gengið er út á austursvalir en einnig inn í alrými sem nýtt er sem borðstofa í dag. 
Borðstofa er nokkuð rúmgóð og myndar miðrými íbúðarinnar. Lakkað gólf.
Eldhús er með lökkuðu gólfi og hvítri innréttingu. Inn af eldhúsi er hentugt búr en einnig er hægt að nýta það sem hluta af herberginu sem er hinu megin við vegginn.
Svefnherbergin eru þrjú. Á tveimur þeirra er lakkað gólf en parket í því þriðja. Í einu herbergjanna er fataskápur og þaðan er jafnframt útgengt á vestursvalir.
Á gangi er fataherbergi sem mætti einnig nýta sem geymslu.
Á baðherbergi er hvít innrétting, sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Þar eru flísar á gólfi og að hluta til á veggjum.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Opið er úr stofu inn í eitt af svefnherbergjum íbúðarinnar.

Bílskúr er stakstæður, affalsvatn af húsinu rennur í gegnum ofna í bílskúr. Framan við bílskúrinn er stórt malar bílaplan sem tilheyrir eigninni.

Annað:
-Skemmtileg íbúð með möguleika
-Risloft yfir íbúðinni, aðgengilegt af gangi
-Ljósleiðari
-Tveir sérinngangar og tvennar svalir
-Garður er í óskiptri sameign
-Stutt í skóla, verslun og miðbæinn

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Norðurgata 45 - 201

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð188,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
74.900.000 kr.398 þ./m²
Byggingarár1955InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2149531Fasteignamat71.100.000 kr.Brunabótamat85.530.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑