fasteignasölur.is
Langamýri 24
Opið hús 5. okt. kl. 16:15–16:45
1 af 25

Um eignina

Kasa fasteignir 461-2010.

Langamýri 24. Falleg og vel viðhaldin 67,3 fm 2-3 herbergja neðri hæð með sér inngangi í tvíbíli með skjólgóðum og grónum garði.

Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, aukaherbergi og geymslu.

Forstofa: 
Er flísalögð með fatahengi.
Gangur: Er Parketlagður með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og hluta af veggjum. Vegghengdur vaskur, sturta og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa: Björt stofa með stórum glugga, parket á gólfum og nýlegri klæðningu í lofti.
Eldhús: Er með góðum skápum, parket á gólfi. Stór gluggi sem hægt er að opna alveg út í garð.
Inn af eldhúsi er lítið aukaherbergi ekki með fullri lofthæð, þar er nýlegur ofn og nýlegt parket á gólfum, vel hægt að nýta það sem aukaherbergi/leikherbergi/skrifstofu. Opnanlegur gluggi er á herberginu. Inn af aukaherbergi er geymsla, með nýlegum ofni og stæði fyrir þvottavél.

- Húsið málið að utan sumarið 2026
- Skipt um gler í aukaherbergi og geymslu sumarið 2026
- Búið að endurnýja inntök út í götu ( Heittvatn, kaltvatn og rafmagn )
- Gróðurhús í garði.
- Fallegur og gróinn garður
- Sér bílastæði
- Fyrirhugað fasteignamat árið 2027 er 44.650.000.-

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Langamýri 24

600 Akureyri
TegundHæðStærð67,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
47.900.000 kr.712 þ./m²
Byggingarár1958InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2148619Fasteignamat43.800.000 kr.Brunabótamat31.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRáðhústorgi 1, 600 AkureyriSími461-2010

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑