fasteignasölur.is
Birkiás 25
Opið hús 3. okt. kl. 12:00–12:30
1 af 52

Um eignina

Lind fasteignasala og Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna vel skipulagt 147,6 fermetra endaraðhús á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum á fjölskylduvænum stað við Birkiás 25 í Garðabæ. Eignin skiptist í 120,8 fermetra íbúðarrými og 26,8 fermetra bílskúr. 

Skjólgóður bakgarður til suðurs með stórri timburverönd, skjólveggjum og kaldri útigeymslu. Auk þess eru stórar þaksvalir til suðurs sem gengið er út á frá efri hæð. Litlar svalir eru einnig til norðurs á efri hæð. Gólfhiti er í öllu húsinu og birtudempun á nánast öllum ljósum.

Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, eldhús og stofu í sama rými, baðherbergi, þvottahús, fataherbergi og bílskúr með geymslulofti.


Nánari lýsing eignar
Forstofa með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Bílskúr með mjög góðri innréttingu. Gott vinnuborð með vask þar sem er bæði heitt og kalt vatn. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrsins.
Þvottahús er inn af bílskúr með góðri innréttingu þar sem eru efri og neðri skápar. 
Sjónvarpshol með parketi á gólfi. 
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými með parketi á gólfi. Snyrtileg innrétting með efri og neðri skápum og flísum á milli þeirra. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður vínkælir og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Eyja með AEG-helluborði og AEG-ofni. Útgengi út á rúmgóða timburverönd með skjólveggjum og fallegum gróðri. Stór markísa ásamt kaldri útigeymslu er einnig í bakgarði. 

Steyptur, parketlagður stigi upp á aðra hæð.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum með bæði baðkari og sturtu. Rúmgóðar innréttingar, upphengt salerni og handklæðaofn, innrétting undir handlaug, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Hol með parketi á gólfi og útgengt út á svalir, annars vegar til norðurs með fallegu útsýni og hins vegar út á rúmgóðar og skjólsælar hellulagðar svalir til suðurs.
Fataherbergi með parketi á gólfi og góðum hillum.
Bílplanið er hellulagt með stæði fyrir nokkra bíla.

Um er að ræða frábæra eign á eftirsóttum stað í Garðabæ, þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Leikskóli og grunnskóli eru í göngufjarlægð. Stutt er í allar helstu stofnæðar. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is
 

Birkiás 25

210 Garðabær
TegundRað-/parhúsStærð147,6 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
146.900.000 kr.995 þ./m²
Byggingarár2000InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2250088Fasteignamat127.950.000 kr.Brunabótamat77.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 52 myndir

Upp ↑