fasteignasölur.is
Brákarsund 5
Opið hús 8. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 42

Um eignina

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:

Brákarsund 5, 310 Borgarnes.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða nýlega 3ja herbergja á efri hæð með sérinngangi í 2. hæða  timburklæddu einingahúsi, byggt 2023. Íbúðin er 91,9 fm skv. skráningu HMS. Þar af er geymsla 7,5 fm. Íbúðin  er vel staðsett í hjarta bæjarins með góðu útsýni yfir Brákarsund. 2 svefnherbergi, sérinngangur og mjög rúmgóðar suður svalir. Gólfhiti er í allri íbúðinni. 

Nánari lýsing:   
                                                                                                                                                  
Gengið er í íbúðina af svölum á efri hæð. Úr anddyri er gengið inn á gang sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Á gangi er baðherbergi, þvottahús, 2.svefnherbergi og geymsla. Innaf gangi er gengið í rúmgott alrými með aukinni lofthæð, sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Gengt er úr stofu út á SV svalir. 

Anddyri: Flísar á gólfi, góður fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, vegghengt salerni, walk-in sturta og handklæðaofn. Falleg dökk innrétting.
Þvottahús: Innaf baðherbergi, flísar á gólfi. Þar er stjórnstöðin fyrir loftræstikerfi íbúðarinnar.      
Svefnherbergin: Eru 2. parket á gólfum og fataskápur í hjónaherbergi.
Geymsla: Innan íbúðar, rúmgóð með parket á gólfi.
Stofan: Björt og rúmgóð, með parket á gólfi. Gengt úr stofu út á rúmgóðar SV svalir. Mikið útsýni.
Eldhús: Parket á gólfi, falleg dökk eikarinnrétting með vönduðum tækjum frá AEG. Spanhelluborð og innbyggð uppþvottavél, ísskápur í innréttingu og bakarofn í vinnuhæð.

Lóðin er þökulögð en bílastæði hinum megin við götuna eru malbikuð. Lögð eru ídráttarrör frá inntaksrými að bílastæðum fyrir rafhleðslu. Sorptunnuskýli eru utandyra og sameiginleg. Bílastæði eru 8. Þar af eru 6 stæði móts við húsið, en 2 bílastæði eru við hlið hússins sem ekki eru séreign neinnar íbúðar.

Fjórar íbúðir eru í húsinu en að auki er sameiginlegt inntaksrými á jarðhæð sem er 2,7 fm að stærð.
Húsið er byggt úr timbureiningum á steyptum grunni og er reist á staðsteypta plötu.  Timburklæðning hússins er heit meðhöndluð kjarnafura með brunavörn sem er viðhaldslítið efni og má grána með tímanum.  Við hönnun og framleiðslu á húsinu er lögð áhersla á  að húsin séu umhverfisvæn. Öll byggingarefni hússins koma frá Noregi og eru með sjálfbærnivottanir. Loftskiptakerfi er í húsinu sem tryggir loftgæði og betri hitastjórnun og þar með orkusparnað.  Þá er sérstaklega gætt að hljóðvist milli íbúða við hönnun hússins.
Gluggarnir eru áltré gluggar, svartir að utan en hvítmálaðir að innan. Útidyrahurðir eru með 3 punkta læsinngu og eru svart málaðar að innan og utan.

Góð og smekkleg íbúð á góðum stað við Brákarsund. Mjög mikið og fallegt útsýni um Brákarsund og til sjávar út á Faxaflóa. Stutt í skóla, íþróttahús og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Brákarsund 5

310 Borgarnes
TegundFjölbýlishúsStærð91,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
62.500.000 kr.680 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2302075Fasteignamat51.750.000 kr.Brunabótamat62.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgarbraut 57, 310Sími497-0040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑