fasteignasölur.is
Las Colinas, Spánn
1 af 15

Um eignina

Glæsileg villa með golfútsýni á Las Colinas Golf & Country Club.

Á einum af eftirsóttustu stöðum Las Colinas Golf & Country Club stendur þessi glæsilega og rúmgóða villa þar sem nútímaleg hönnun, næði, gæði og þægindi fara saman í einstaklega fallegu umhverfi.

Eignin er 298 m² að stærð og stendur á 1.043 m² lóð, þar sem fallegur og vel hannaður garður umlykur húsið og skapar mikið næði. Húsið er allt á einni hæð og hannað með þægilegt og afslappað líf í huga, þar sem innirými og útisvæði tengjast á fallegan og eðlilegan hátt.

Þegar gengið er inn tekur við bjart og rúmgott opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Stórir gluggar og glerveggur hleypa mikilli dagsbirtu inn og tengja heimilið beint við garðinn og útisvæðin.

Úti tekur við stór og sólrík verönd með einkasundlaug, útieldhúsi og góðu rými fyrir sólbað, afslöppun og samveru. Sundlaugin snýr að golfvellinum og býður upp á fallegt útsýni yfir grænar brautir Las Colinas. Útisvæðið er því kjörið fyrir þá sem vilja njóta spænska lífsstílsins, hvort sem er í rólegum morgunverði undir berum himni eða með fjölskyldu og vinum á góðu kvöldi.

Villan býður upp á þrjú rúmgóð svefnherbergi og þrjú baðherbergi, þar af glæsilega hjónasvítu með sér fataherbergi og sérbaðherbergi. Öll svefnherbergin hafa beinan aðgang út í garðinn, sem gefur eigninni einstaklega gott flæði og tengingu við umhverfið.

Eldhúsið er opið og vel tengt stofunni og við það er einnig þvottaherbergi/geymsla. Á efri hluta hússins er rúmgott sólarium með stórkostlegu útsýni, sem gefur enn einn möguleikann til að njóta sólarinnar og umhverfisins.

Bílskúrinn er sérstaklega rúmgóður, 68 m² og með plássi fyrir tvo bíla, auk þess sem þrír bílar til viðbótar geta verið á lóðinni.

Las Colinas Golf & Country Club

Las Colinas er lokað og vaktað lúxusresort umkringt meira en 330 hekturum af friðlýstum Miðjarðarhafsskógi. Hér sameinast náttúra, golf og fyrsta flokks þjónusta í einstöku umhverfi.

Á svæðinu er margverðlaunaður 18 holu golfvöllur ásamt veitingastöðum, líkamsræktarstöð, heilsulind, tennis- og padelvöllum og fallegum gönguleiðum.

Fyrir golfáhugafólk er staðsetningin sérstaklega áhugaverð, þar sem fleiri þekktir golfvellir eru í næsta nágrenni, meðal annars La Finca, Las Ramblas, Campoamor og Villamartín.

Strendur Campoamor eru í um 10 mínútna akstursfjarlægð, sem og verslunarmiðstöðin La Zenia Boulevard.

Þetta er eign sem hentar jafnt sem glæsilegt framtíðarheimili, sumarhús eða lúxuseign á Costa Blanca. Hér færðu rúmgott og vel hannað heimili, stórkostlegt útisvæði, gott næði og golfvöllinn nánast sem hluta af bakgarðinum.

Falleg villa í einu eftirsóttasta golf- og íbúðahverfi Costa Blanca – fyrir þá sem vilja njóta lífsins í góðu umhverfi, með næði, gæði og spænskan lífsstíl í fyrirrúmi.

Las Colinas, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundEinbýlishúsStærð298 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.3
138.703.000 kr.465 þ./m²
FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090

Allar 15 myndir

Upp ↑