Um eignina
Miklaborg kynnir: Falleg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Laufásveg 17, 101 Reykjavík. Stærð eignarinnar er 102,2 fm og skiptist eignin í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi, sjónvarpshol, tvö svefnherbergi og tvennar geymslur.
Fjögur bílastæði eru á lóðinni við Laufásveg 17 og eru þau í óskiptri sameign.
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Birt stærð eignarinnar skv. skráningu HMS er 78,1 m2 auk 24,1 m2 óskráðs rýmis sem er á lóð Laufásvegar 19 og er innan íbúðar.
Forstofa: sérinngangur inn í forstofu. Tveir aðrir inngangar eru í íbúðina.
Alrými: úr forstofu er komið inn í rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Eldhús: með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi: flísalagt með fallegri innréttingu og sturtuklefa.
Þvottahús: innrétting með vaski og þvottavél. Inngengt er úr þvottarými í rúmgóða geymslu.
Innri stofa og/eða sjónvarpshol: rúmgóð stofa með þakglugga.
Svefnherbergin eru tvö talsins. Svefnherbergin tilheyra óskráða hlutanum. Þau snúa í bakhluta hússins og hægt er að ganga út úr öðru svefnherberginu út á baklóð.
Geymsla: innangengt er í litla sérgeymslu og þaðan í hjólageymslu og sameign.
Úr hjólageymslu er útgengt út að bilaplan að norðanverðu.
Bílastæði, í óskiptri sameign, eru staðsett við enda hússins.
Um er að ræða mjög rúmgóða og skemmtilega eign við eina af eftirsóttustu götu Reykjavíkur
Allar nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Laufásvegur 17
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























