Um eignina
Miklaborg kynnir:
BJört og falleg 130 fm, 4ra herbergja íbúð á 2.hæð ásamt góðu herbergi í risi með aðgengi að sameignlegri snyrtingu.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í hol sem leiðir þig í allar helstu vistaverur íbúðarinnar. Eldhús er með fallegri, nýlegri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og borðkrók. Stofan er björt og rúmgóð. Hjónaherbergið er rúmgott með fallegum bogadregnum glugga í s-vestur og með útgent á svalir í s-vestur. Baðherbegið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, upphengd salerni, nýleg innrétting og fallegur hringlaga gluggi. Barnaherbergin eru tvö og er annað þeirra sem áður var stofa sérlega rúmgott. Í risinu er stórt aukaherbergi með og aðgengi að sameiginlegu salerni. Herbergin hafa verið í útleigu og geta því gefið góðar aukatekjur.
Í kjallara er góð geymsla ásamt sameignlegur þvottahúsi og hjólageymslu. Stór bílaplan er fyrir framan húsið.
GÓLFEFNI: Fallegt parket er á öllum gólfum nema baði og eldhúsi en þar eru flísar
Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignsali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Eskihlíð 16B
Staðsetning
Allar 36 myndir
Upp ↑


































