Um eignina
Eignin er skráð 166,2 m² skv. Fasteignaskrá HMS, þar af íbúð 129,7 m², geymsla á jarðhæð 8,4 m², útigeymsla 1,8 m² og sérstæður bílskúr 26,3 m².
Íbúðin var nánast öll endurgerð á árunum 2022–23. Þá voru allar innréttingar, skápar, innihurðir, gólfefni og vatns- og raflagnir endurnýjuð. Alrými var stækkað og skipulagi breytt með samþykki byggingarfulltrúa.
Nánari lýsing: Komið er inn um sérinngang og í opna forstofu með sérútbúnu terrazzo-microsement gólfefni. Gott herbergi er næst forstofu með fataskáp, hægt að nýta sem svefnherbergi eða skrifstofu.
Bjart og opið alrými tekur notalega á móti heimilisfólki. Eldhús og stofa eru samliggjandi í einu flæði og útgengt er á skjólgóðar svalir sem snúa til suðvesturs.
Eldhúsið er opið og glæsilegt, með sérsmíðaðri Hacker-innréttingu með góðu skápaplássi, m.a. tækjaskáp og búrskáp. Eldhústækin, uppþvottavél (Miele), ísskápur og frystir eru öll innbyggð í innréttinguna. Borðplötur eru úr Dekton-steini en fallegan svip á innréttinguna mót stofunni setja lerki hurðir. Helluborð (Bora) með innbyggðri viftu er staðsett á rúmgóðri eyju sem tengir eldhús og stofu.
Á opnum og rúmgóðum gangi/holi eru grunnir fataskápar sem rúma yfirhafnir. Íbúðin er með þremur sérlega rúmgóðum svefnherbergjum á herbergisgangi. Upphaflega var eitt herbergið hugsað sem setustofa en er nú barnaherbergi, afar auðvelt að breyta því aftur í stofu. Annað er unglingaherbergi með góðum fataskáp og hið þriðja hjónaherbergi með góðum fataskápum, rúmar líka ágætlega vinnuaðstöðu.
Baðherbergið er skemmtilega hannað með opinni sturtu, microsementi á gólfum og veggjum, innfelldri lýsingu, handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi. Falleg Hacker-innrétting er með Corian-vaski. Gólfhiti er á baðherbergi.
Vandaður linoleum dúkur með kork undirlagi er á gólfum stofu, hols, eldhúss og fyrsta svefnherbergis. Á öðrum svefnherbergjum er gegnheilt parket úr ask og harðparket í forstofuherbergi.
Í sameign á jarðhæð fylgir sérgeymsla íbúðarinnar, skráð 8,4 m², aflöng með glugga og hillum. Þá er einnig köld útigeymsla, skráð 1,8 m², undir tröppum. Rúmgott sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð með sér þvottaaðstöðu fyrir allar íbúðir og hjólageymslu.
Bílskúrinn er skráður 26,3 m² og var byggður nokkrum árum á eftir húsinu (1965). Hann var múrviðgerður og málaður sumarið 2026 og lítur vel út. Innan hans er innréttað íverurými með baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug og litlum glugga með opnanlegu fagi. Alrými er með nettri eldhúsinnréttingu og óskiptu rými sem nýtist vel sem bæði stofa og svefnaðstaða. Hentar því vel til útleigu. Góðir gluggar eru meðfram annarri hliðinni og inn í garðinn. Bílskúrshurðin er enn til staðar en einangruð hurð innan frá lokar honum.
Eigninni fylgir skjólgóður suðurgarður með sér afnotarétti. Hálfur garðurinn tilheyrir eignarhlutanum samkvæmt eignaskiptasamningi. Þar eru bæði rúmgóður sólpallur með geymsluskúr og góð grasflöt.
Þetta er einstaklega vel skipulögð og falleg eign í góðu hverfi, með tilliti til skóla, leikskóla, þjónustu og samgangna, auk fjölbreyttra afþreyingarmöguleika fyrir alla aldurshópa.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Úthlíð 8
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































