Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgott og vel skipulagt 258,2 m2 einbýlishús á einni hæð með stórum innbyggðum bílskúr á 1.000 m2 eignarlóð við Reykjaveg 64 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 258,2 m2, þar af einbýli 197,6 m2 og bílskúr 60,6 m2. Byggingarár hússins er 2022.
Eignin skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymslu, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr. Loft eru niðurtekin nema í stofu og bílskúr. Dúkur frá Parka í öllum loftum í íbúðarhlutanum og steinull fyrir ofan til að eyða bergmáli. Hljóðvist er góð í húsinu. Gólfhiti er í öllu húsinu. Loftskiptikerfi er í öllu íbúðarrýminu.
Stórt steypt bílastæði fyrir fram hús og steyptar gönguleiðir með hliðum hússsins. Bílastæði og inngangur eru með snjóbræðslu. Fyrir aftan húsið er stór timburverönd sem snýr í suðvesturátt. Á veröndinni er vandað flísalagt garðhús með gólfhita, rennandi vatni, rafmagni og glugga. Lagnir fyrir heitan pott eru undir timburverönd.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa er í rúmgóðu og björtu rými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Mikið er af gluggum sem gerir rýmið bjart og fallegt. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting með eyju frá GKS. Mikið skápapláss. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, helluborð, tveir ofnar og undirlímdur vaskur. Gert er ráð fyrir amerískum ísskáp í innréttingu. Úr stofu er útgengt út á timburverönd í bakgarði.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 (forstofuherbergi) er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi nr.1 er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu. Útgengt er út í garð.
Baðherbergi nr.2 er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu.
Þvottahús er með stórri innréttingu með miklu skápaplássi og flísum á gólfi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. úr þvottahúsi er útgengt út í garð.
Bílskúrinn er mjög rúmgóður, tvær bílskúrshurðar, epoxy á gólfi, innangengt, gert er ráð fyrir hleðslu fyrir rafmagnsbíla í töflu.
Verð kr. 168.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Reykjavegur 64
Staðsetning
Allar 40 myndir
Upp ↑






































