Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 115,0 m2 3-4ra herbergja endaíbúð á jaðhæð, merkt 01-0102, í nýju fimm íbúða fjölbýlishúsi við Kolbrúnargötu 1 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 115,0 m2, þar af íbúð 107,0 m2 og geymsla 8,0 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu (væri hægt að breyta í herbergi). Sérgeymsla í sameign á jarðhæð. Rúmgóð sér timburverönd í suðurátt með steyptum skjólvegg.
Eignin afhendist fullbúin í nóvember 2026 með gardínum, gólfefnum, innréttingum frá HTH og innbyggðum eldhústækjum. Búið að leggja rafmagn fyrir rafbílahleðslu frá ON á sameiginleg bílastæði. Skv. samþykktum bygginganefndarteikningum, þann 29.11.2024, þá er búið að fá samþykki fyrir svalalokunum á öllum íbúðum í húsinu. Íbúðirnar eru afhentar án svalalokana og eru kaupendur hvattir til að kynna sér vel skilmála svala og verandalokana, áður en þeir taka ákvörðun um að fara í þá framkvæmd.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Eldhúsinnrétting frá HTH með blástursofni, örbylgjuofni, spanhelluborði, viftu frá Airforce, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp og frystiskáp. Heimilistæki frá AEG. Úr stofu er gengið út á rúmgóða afgirta timburverönd í suðurátt.
Sjónvarpsstofa er með parketi á gólfi. Opið er inn í sjónvarpsstofu úr stofu. Hægt væri að setja upp vegg og bæta við þriðja svefnherberginu.
Svefnherbergi nr.1 (hjónaherbergi) er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofni og sturtu með sturtugleri.
Þvottahús er með innréttingu þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð hússins.
Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Annað:
Kolbrúnargata 1 er 2ja hæða fjölbýlishús með 5 íbúðum. Húsið er hannað af Garðari Snæbjörnssyni, arkitekt hjá GS-Teiknistofu ehf. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt. Húsið er byggt af Byggingarfélagi Bakka ehf en Bakki er fjölskyldufyrirtæki úr Mosfellsbæ, með yfir 40 ára reynslu af húsbyggingum. Félagið hefur byggt og afhent yfir 250 íbúðir í Mosfellsbæ á sl. 10 árum.
Lóð verður fullfrágengin, 10 bílastæði eru á lóðinni en þar af eru 1 fyrir hreyfihamlaða. Gönguleið að húsi er hellulögð með snjóbræðslu. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotarétt að lóð út frá stofu með afgirtri timburverönd. Íbúðir á 2. hæð eru með rúmgóðar svalir í suðurátt.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með innréttingum frá HTH. Heimilistæki eru frá AEG. Eikarlitað harðparket á gólfum, frá Birgisson. Flísar á baðherbergjum, þvottahúsi og á forstofu eru frá Birgisson. Blöndunartæki eru frá Tengi.
Verð kr. 91.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Kolbrúnargata 1 (102)
Staðsetning
Allar 28 myndir
Upp ↑


























