1 af 21
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Gott 32 fermetra geymsluhúsnæði/frístundabil við Álhellu 14-30, Hafnarfirði, á afgirtu bílskúrasvæði á móts við álverið. Keyrt inn á svæðið um afrein sunnan við álverið. Skúrinn er með vélslípuðu gólfi og niðurfalli, vaskur með heitu og köldu vatni, lýsing í lofti, ofn til upphitunar, rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni, einn 3ja fasa rafmagnstengill við rafmagnstöflu, rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara, ljósarofi og rafmagnstengill nálægt hurð. Bílskúrshurð með inngönguhurð. Stærð á bílskúrshurð: breidd 2,50 m og hæð 2,69 m. Gott tækifæri til að eignast góðan bílskúr/geymsluskúr með malbikuðu plani. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.isÚtveggir eru gerðir úr forgerðum steinullareiningum (harðpressuð steinull sem klædd er með aluzinki.) Einingarnar eru 100 mm á þykkt. Þakeiningar eru úr 150 mm þykkum steinullareiningum.
Gólf er steypt, járnbent og vélslípað með niðurfalli. Raflagnir eru utanáliggjandi á veggjum, 3ja fasa rafmagn í rafmagnstöflu og 3ja fasa tengill við töflu. Vaskur með heitu og köldu vatni nærri dyrum, ofn til upphitunar innst í skúrnum.
Sameignleg salernisaðstaða er staðsett í C-húsi, matshluta 03 og er hún í sameign allra mhl (01,02,03,04 og 05.) Húsfélagið sér um rekstur snyrtingarinnar, sem er með innhringilás. Lóðin er afgirt með einu hliði sem verður læst með innhringilás.
Fjöldi bílastæða á lóðinni. Öflugt húsfélag er rekið á svæðinu, en samtals eru 192 bil á svæðinu.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Álhella 28
221 Hafnarfjörður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð32 m²
14.500.000 kr.453 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2515018Fasteignamat12.400.000 kr.Brunabótamat12.850.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 21 myndir
Upp ↑



















