fasteignasölur.is
Bárusker 4 (103)
1 af 36

Um eignina

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Bárusker 4, íbúð 103, 245 Sandgerði

Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og tveimur svefnherbergjum. Eldhús og stofa mynda opið alrými og frá stofu er útgengt á timburverönd með skjólveggjum. Íbúðin er með gólfhita, þvottaaðstöðu á baðherbergi og henni fylgir sérgeymsla. Laus við kaupsamning.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð 78,6 m², merkt 01-0103. Þar af er íbúð 75,7 m² og sérgeymsla, rými 0108, 2,9 m². Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Anddyri
er með flísum á gólfi. Skápar eru við inngang.
Eldhús er í opnu alrými með stofu. Innrétting er með dökkri viðaráferð að mestu og hvítum efri skápum ásamt ljósri borðplötu. Bakaraofn er í vinnuhæð, helluborð og háfur. Ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Stofa og borðstofa eru í samliggjandi alrými við eldhús. Stór glugga- og hurðareining er í stofu og þaðan er útgengt á timburverönd.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. Stærra svefnherbergið er með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum. Þar er innrétting með vaski, upphengt salerni og opin sturta. Innan baðherbergis er jafnframt innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni eru parket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í anddyri og baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni.

Sérgeymsla er 2,9 m² og merkt 0108.

Verönd og sérafnotaflötur:
Frá stofu er útgengt á timburverönd með skjólveggjum. Samkvæmt samþykktum uppdrætti er 19,7 m² sérafnotaflötur við íbúðina.

Byggingarlýsing:
Húsið er tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með 11 íbúðum. Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir einangraðir að utan og klæddir bárujárni og sléttri málmklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Bárusker 4 (103)

245 Sandgerði
TegundFjölbýlishúsStærð78,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
54.900.000 kr.698 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2524698Fasteignamat39.200.000 kr.Brunabótamat43.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangReykjanesvegur 40, 260 ReykjanesbæSími780-2575

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑