1 af 14
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulagt parhús á einni hæð. Góð aðkoma er að húsinu. Bílskúr. Frábært og fjölskylduvænt hús. Sérsmíðaðar innréttingar. Gólfhiti í öllu húsinu. Stutt er í leikvöll, leikskóla, skóla, sundlaug og íþróttasvæði.*** Sækja söluyfirlit ***
Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið Baugöldu 7, 850 Hellu, F2299946. Parhús á einni hæð, með bílskúr. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 145,9 fm, þar af er íbúðarrými 117,1 fm, bílskúr er skráður 21,8 fm. Íbúðarrými hússins skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús auk bílskúrs. Bílskúr er snyrtilegur með steyptu gólfi.
Anddyri er með góðum fataskápum. Flísar á gólfi.
Eldhús er sér með opið inn í borðstofu/stofu í alrými. Rúmgott með fallegri, sérsmíðaðri innréttingu með góðu vinnu- og skápaplássi og borðkrók. Innréttingarnar eru sérsmíðaðar með dökkum, gegnlituðum Valchromat-frontum, eikarköntum og frágangsplötum úr eikarspón. 80 cm spanhelluborð niðurfellt í borðplötuna. Whirlpool ofn og innbyggður örbylgjuofn frá 2021. Uppþvottavél frá 2023. Harðparket á gólfi.
Borðstofa / stofa eru í rúmgóðu alrými. Harðparket á gólfi. Útgengt er á hellulagða verönd með góðum skjólvegg. Innbyggður, sérsmíðaður skenkur er undir sjónvarpi er með skúffum og hillum. Annar sérsmíðaður skenkur er á gangi í sama stíl.
Herbergi 1 er rúmgott (13,4 fm) með fataskápum. Harðparket á gólfi.
Herbergi 2 er 9,1 fm, með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Herbergi 3 er 8,7 fm, með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott (8 fm) með snyrtilegri eikarinnréttingu og handlaug. Walk-in sturta, upphengt salerni. Flísar á gólfi og á veggjum við sturtuna. Opnanlegur gluggi. Handklæðaofn. Möguleiki á baðkari á baðherbergi. Innfelld næturlýsing í veggjum.
Þvottahús er inn af bílskúr. Sérsmíðuð hvít innrétting með vaski og skúffum fyrir tau. Stórir skápar eru fyrir ofan þvottavél og þurrkara auk kústaskáps. Pláss fyrir frystiskáp / frystikistu. Harðparket á gólfi. Möguleiki er á salerni í þvottahúsi.
Bílskúr er snyrtilegur (21,8 fm). Innkeyrsluhurð og inngönguhurð. Heitt og kalt vatn. Steypt gólf. Góð innkeyrsla með grófri möl er fyrir framan bílskúrinn með pláss fyrir 2 bíla. Við inngang og meðfram húsinu er hellulögð verönd. ATH. Geymsla sem sýnd er innst í bílskúr á upphaflegri grunnteikningu var aldrei afmörkuð með vegg. Bílskúrinn nýtist því í dag sem eitt stórt og opið rými.
ATH! Húsið var keypt tilbúið til innréttinga og klárað 2021. Milliveggir, hurðir, gólfefni, innréttingar og heimilistæki eru því frá 2021 þótt skráð byggingarár sé 2007. Allar innréttingar og fataskápar eru sérsmíði með legrabox skúffum með ljúflokum frá Blum.
Á gólfum er 12 mm harðparket, lagt fljótandi og samfellt um almenn íbúðarrými. Innihurðir eru vandaðar, yfirfelldar eikarhurðir með felliþröskuldum. Þær gefa snyrtilegt yfirbragð án hefðbundinna þröskulda og stuðla jafnframt að betri lokun milli rýma.
Húsið er kynt með hitaveitu með gólfhita, hvert rými er með sjálfstæðum stafrænum hitastilli. Í almennum íbúðarrýmum liggja gólfhitalagnirnar í gifsmúr ofan á burðarplötu hússins. Kerfið bregst því tiltölulega hratt við hitabreytingum, heldur jöfnum og þægilegum hita án þess að stöðugt þurfi að breyta stillingum. Í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi er gólfhitinn lagður í hefðbundna steypu sem hentar betur rakaálagi þessara rýma.
Allt rafmagn var lagt árið 2021, þar með talin rafmagnstafla, tenglar, rofar, hitastillar og lýsing. Gólfhitakista, gólfhitalokar, lagnagrind og tilheyrandi búnaður eru einnig frá árinu 2021. Innfelld næturlýsing er í veggjum á gangi og á baðherbergi og LED-lýsing er í öllu húsinu, þar með talið bílskúr.
Húsið er klætt með viðhaldsléttri, sléttri steni klæðningu. Gluggar, þakskegg og aðrir fletir að utan málað sumarið 2026 með málningarkerfi frá Flügger.
Innra byrði, þar með taldir allir gluggar, var málað sumarið 2026.
Skjólveggur smíðaður sumarið 2026.
Ruslatunnuskýli smíðað sumarið 2026.
Lóðin undir parhúsunum báðum er 1.410 fm samtals en lóð þessa húss er 750 fm og nokkuð gróin með hellulagðri verönd og timbur skjólvegg.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Baugalda 7
850 Hella
TegundRað-/parhúsStærð145,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
73.500.000 kr.504 þ./m²
Byggingarár2007InngangurMargir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2299946Fasteignamat60.500.000 kr.Brunabótamat88.990.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 14 myndir
Upp ↑












