fasteignasölur.is
Hallgerðargata 11
Opið hús 6. okt. kl. 16:00–17:00
1 af 28

Um eignina

Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallega og vandaða 3. herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Hallgerðargötu 11, Reykjavík
Eignin er 89,1 fm á 3. hæð og einkennist af björtu og opnu alrými, svölum í sólarátt.  Möguleiki er á leigu á bílastæði í bílakjallara gegn vægu gjaldi.

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is


Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í snyrtilega forstofu með góðum innbyggðum fataskápum. Parket er á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofan er einstaklega björt og rúmgóð með stórum gluggum sem hleypa góðri dagsbirtu inn. Stofa og borðstofa mynda skemmtilegt alrými með eldhúsi og góðu plássi fyrir bæði stórt sófasett og borðstofuborð. Úr stofu er útgengt á góðar svalir.
Svalir: Rúmgóðar og skjólgóðar svalir í suð-vestur.
Eldhús: Eldhúsið er stílhreint með hvítri innréttingu, dökkum borðplötum og góðu skápaplássi. Stór eldhúseyja og býður upp á bæði gott vinnupláss og setuaðstöðu. Innbyggður ofn og helluborð eru í eyjunni.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með stórum glugga og mjög góðum fataskápum.
Svefnherbergi: Gott svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er snyrtilegt, flísalagt í ljósgráum tónum. Þar er stór sturtuaðstaða, upphengt salerni, innrétting með handlaug og baklýstur spegill. Innan baðherbergis er þvottaaðstaða með plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sér geymsla í sameign
Hjóla- og vagnageymsla: Sameigileg í sameign. 

Byggingaraðili hússins var Reirverk, Húsið var byggt 2023

Möguleiki er á að leigja bílastæði í bílakjallara gegn vægu gjaldi, sem er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggt stæði innandyra.
Mánaðarpassar

Sólahringspassi íbúar (24/7) - Kr. 9.400
Dagpassi (8 - 16) - Kr. 7.800
Dagpassi (9 - 17) - Kr. 7.800
Dagpassi (7-18) - Kr. 9.400
Kvöldpassi (16 - 10) - Kr. 5.800

Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali
Sími: 699-2010/ maggi@remax.is
RE/MAX, Skeifan 17

 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
87.900.000 kr.987 þ./m²
+17,4% á 3 árum
28. september 2023Þinglýstur kaupsamningur
74.900.000 kr.841 þ./m²
+2,0% á 1 ári
28. desember 2022Fyrsta sala
73.400.000 kr.824 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hallgerðargata 11

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð89,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
87.900.000 kr.987 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2517541Fasteignamat84.450.000 kr.Brunabótamat61.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑