fasteignasölur.is
Bárusker 4
1 af 39

Um eignina

Ásberg fasteignasala kynnir;

Ásberg fasteignasala kynnir eignina: Bárusker 4B, 245 Sandgerði, birt stærð 78.6 fm. Bókið skoðun, sýnum samdægurs!
Um er að ræða fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og tveimur svefnherbergjum. Eldhús og stofa mynda opið og bjart alrými með gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út á timburverönd með skjólveggjum. Gólfhiti er í íbúðinni og henni fylgir sérgeymsla. Íbúðin er laus við kaupsamning
Sérinngangur
Timburverönd með skjólveggjum, 19,7 m² sérafnotaflötur.
Gólfhiti. Sérgeymsla

Nánari lýsing eignar
Anddyri: Flísar á gólfi og skápar við inngang.
Eldhús: Í opnu alrými með stofu. Innréttingin er að mestu með dökkri viðaráferð, með hvítum efri skápum og ljósri borðplötu. Bakarofn er í vinnuhæð, auk helluborðs og háfs. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi alrými við eldhús með gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út á timburverönd.
Svefnherbergin eru tvö, Í því stærra eru fataskápar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með vaski, upphengt salerni og opin sturta. Á baðherberginu er einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er 2,9 fm

Húsið er tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með 11 íbúðum. Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir einangraðir að utan og klæddir bárujárni og sléttri málmklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is  asberg@asberg.is 

Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, thorunn@asberg.is
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Jón Gunnarsson Lgf  Fasteigna- og skipasali  Sími 894-3837
Þórunn Einarsdóttir Nám Fasteigna- fyrirtækja og skipasali Sími 898-3837

Vantar allar eignir á skrá. Frítt sölumat.

Bárusker 4

245 Sandgerði
TegundFjölbýlishúsStærð78,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
54.900.000 kr.698 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2524697Fasteignamat39.200.000 kr.Brunabótamat43.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargötu 27, 230 KeflavíkSími421-1420

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑