1 af 34
Um eignina
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir Bárusker 4B, 245 Sandgerði, birt stærð 78.6 fm.
Um er að ræða fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og tveimur svefnherbergjum. Eldhús og stofa mynda opið og bjart alrými með gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út á timburverönd með skjólveggjum. Gólfhiti er í íbúðinni og henni fylgir sérgeymsla.
Laus við kaupsamning
Nánari lýsing eignar
Forstofa Flísar á gólfi og skápar við inngang.
Eldhús: Í opnu alrými með stofu. Innréttingin er að mestu með dökkri viðaráferð, með hvítum efri skápum og ljósri borðplötu. Bakarofn er í vinnuhæð, auk helluborðs og háfs. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi alrými við eldhús með gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út á timburverönd.
Svefnherbergin eru tvö, Í því stærra eru fataskápar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með vaski, upphengt salerni og opin sturta. Á baðherberginu er einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
*Sérgeymsla er 2,9 fm
*Sérinngangur
*Timburverönd með skjólveggjum, 19,7 m² sérafnotaflötur.
*Gólfhiti
Húsið er tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með 11 íbúðum. Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir einangraðir að utan og klæddir bárujárni og sléttri málmklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veita
Halli halli@studlaberg.is 6619391
Dóri dori@studlaberg.is 8634495
Brynjar brynjar@studlaberg.is 8965464
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Stuðlaberg
54.900.000 kr.698 þ./m²
+20,0% á 3 árum
21. desember 2023Fyrsta sala
45.745.000 kr.582 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bárusker 4B
245 Sandgerði
TegundFjölbýlishúsStærð78,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
54.900.000 kr.698 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2524697Fasteignamat39.200.000 kr.Brunabótamat43.800.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 34 myndir
Upp ↑
































