1 af 38
Um eignina
Ásberg fasteignasala kynnir;
Ásberg fasteignasala kynnir í sölu eignina Bjarkardalur 21c, 260 Reykjanesbær. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 108.2 fm.Eignin er laus við kaupsamning
Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými og 17,4 m² verönd.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og opið rými með stórum gluggum og góðri tengingu við útisvæði eignarinnar. Gólfhiti er í íbúðinni og vandaðar innréttingar eru í samræmdum viðartóni. Eigninni fylgja 4,2 m² sérgeymsla og bílastæði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Nánar um eign:
Anddyri: Er með flísum á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Eldhús: Er í opnu rými með borðstofu og stofu. Innrétting er viðarlituð með góðu skápaplássi, innbyggðum ofni og eyju með helluborði og skúffum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Stofa og borðstofa: Eru í samfelldu alrými með eldhúsi. Stórir gluggar eru í alrýminu og þaðan er útgengt á verönd.
Svefnherbergi: Eru þrjú og eru fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergi: Er flísalagt á gólfi og veggjum við votrými. Þar er viðarlituð innrétting með handlaug, speglaskáp, upphengt salerni og sturta með glerþili.
Gólfefni eru parket á meginrýmum og flísar í anddyri og baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni.
Bygging og lóð
Bjarkardalur 21 er tveggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum. Húsið er steinsteypt, útveggir einangraðir að utan og klæddir. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré samkvæmt byggingarlýsingu. Gólfhiti er í íbúðum og vélræn loftræsting í lokuðum rýmum. Eigninni fylgir eitt sérnotabílastæði. Auk þess eru sameiginleg bílastæði á lóð.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is asberg@asberg.is
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, thorunn@asberg.is
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Jón Gunnarsson Lgf Fasteigna- og skipasali Sími 894-3837
Þórunn Einarsdóttir Nám Fasteigna- fyrirtækja og skipasali Sími 898-3837
Vantar allar eignir á skrá. Frítt sölumat.
Bjarkardalur 21
260 Njarðvík
TegundFjölbýlishúsStærð212,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
72.500.000 kr.342 þ./m²
Byggingarár2023FasteignanúmerF2530408Fasteignamat137.400.000 kr.Brunabótamat122.340.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 38 myndir
Upp ↑




































