fasteignasölur.is
Vorbraut 11
NýttOpið hús 4. okt. kl. 14:45–15:15
1 af 50

Um eignina

Vorbraut 11 – stórkostlegt útsýni, tvennar þaksvalir og tvö bílastæði!

Miklaborg og Böddi kynna glæsilega 133,3 fm þakíbúð á frábærum stað í Garðabæ. Hér fara saman björt og falleg rými, rúmgóð hjónasvíta og tvennar þaksvalir sem snúa til norðurs og suðurs. Eigninni fylgja tvö stæði í bílageymslu.





Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskápum leiðir inn í um 38 fm alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallega heild. Stórigluggi frá gólfi hleypa birtunni inn og ramma inn stórkostlegt útsýni til norðurs. Úr alrýminu er gengið út á um 13 fm þaksvalir til norðurs

Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi inn af því.

Annað herbergi með fataskáp hentar vel sem svefnherbergi eða notaleg skrifstofa.

Á svefnherbergisgangi eru annað baðherbergi og þvottahús. Þaðan er einnig útgengt á um 14 fm þaksvalir sem snúa til suðurs.

Frábær staðsetning með stutt í alla helstu þjónustu og greiðu aðgengi að stofnbrautum.

Þakíbúð fyrir þig sem vilt útsýni, birtu og það litla auka.


Birt stærð íbúðarinnar eru 133,3 fm, þar af 15,5 fm geymsla.


Böddi, löggiltur fasteignasali
Sími 821 6300 · boddi@miklaborg.is

Fasteignasalinn þinn – þetta selur sig ekki sjálft.






Vorbraut 11

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð133,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
159.900.000 kr.1.200 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2542450Brunabótamat1 kr.
Skráð hjá
Böðvar Þ. EggertssonLöggiltur fasteignasali821-6300 · boddi@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑