fasteignasölur.is
Borgartún 24B 601
1 af 28

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og kynna: BORGARTÚN 24 - íbúð 601 ásamt stæði í bílageymslu merkt 01B18 í bílakjallara. 3ja herbergja íbúð með svölum til suðausturs. Sameiginlegar þaksvalir eru í húsinu á 4, 6 og 7. hæð með útsýni til fjalla og sjávar.

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 601 í Borgartúni 24a, íbúð merkt 01-0601, F2518387. 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu og rúmgóðum svölum sem snúa út á Nóatúni, til suðausturs. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 81,5 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er 11,3 fm. Svalir snúa í suð-austur. Sérstæði í bílageymslu (B18) fylgir íbúðinni. 

Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
 
Frágangur íbúðar að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.  
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð.  30 bílastæði eru á lóð.
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.

Bókið skoðun: 
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Borgartún 24B 601

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð81,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
94.900.000 kr.1.164 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2518388Fasteignamat81.250.000 kr.Brunabótamat60.190.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑