fasteignasölur.is
Álfhólsvegur 153
Opið hús 6. okt. kl. 16:45–17:15
1 af 37

Um eignina

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Reisulegt einbýlishús á góðum stað í Kópavogi þar sem mjög stutt er í alla helstu þjónustu.
Húsið er steypt og skiptist í tvær íbúðir, eina á hvorri hæð. Bárujárn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 230,3 m2 og er bílskúr 27,5 m2 þar af.
Lóðin er 1329 m2 og er mögulega hægt að byggja meira á lóðinni.

Íbúð á efri hæð
Gengið er inn í forstofu á jarðhæð og þaðan er stigi upp á efri hæð.
Inn úr forstofu eru tvö rými sem nýtast sem góð geymsla/herbergi/þvottahús. Í öðru rýminu eru lagnakistur og inntök, þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Búið er að leggja lagnir fyrir auka salerni og sturtu.
Á efri hæð er rúmgóð stofa og eldhús með parketi á gólfi, þar er góð innrétting.
Þrjú herbergi eru á efri hæðinni eitt þeirra með svölum.
Baðherbergi sem er byrjað í yfirhalningu, þar eru komnar nýjar lagnir. Þar er upphent salerni, sturtuklefi og handlaug.
Frábært útsýni er úr íbúðinni.

Íbúð á neðri hæð
Hefur verið mikið endurnýjuð (2021) og er í útleigu.
Í íbúðinni er alrými með fínu eldhúsi og tengi fyrir þvottavél.
Þar eru tvö svefnherbergi og baðherbergi með sturtu.
Flísar eru á gólfi.
Sérinngangur er inn í íbúðina.

Bílskúrinn var steyptur upp á nýtt fyrir stuttu og er fokheldur.
Möguleiki á að útbúa útleigueiningu í honum.
Rúmgóð bílastæði eru fyrir framan húsið.
Lóðin er skjólgóð og gróin með stórum steyptum vegg og timburvegg í kring.
Örstutt í skóla, leikskóla og verslun.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Árborgir - Fasteignasala
157.000.000 kr.682 þ./m²
+95,0% á 6 árum
20. ágúst 2020Fyrsta sala
80.500.000 kr.350 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Álfhólsvegur 153

200 Kópavogur
TegundEinbýlishúsStærð230,3 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.2
157.000.000 kr.682 þ./m²
Byggingarár1956InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2058413Fasteignamat157.200.000 kr.Brunabótamat103.490.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 6, 800 SelfossSími482-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑