fasteignasölur.is
Skerjabraut 17
1 af 33

Um eignina

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir fallegt 4ra herbergja 118fm endaraðhús ásamt 27fm bílskúr við Skerjabraut 17 í 245 Suðurnesjabæ.
Birt stærð eignarinnar er 145fm.

------ Fallegt útsýni yfir grasilagða náttúru og til sjávar -------


Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur. 
Hol er parketlagt.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er falleg hvít innrétting  með eldurnareyju, ofn, helluborð og vifta.  Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni. 
Stofa er parketlögð og hurð er út á verönd frá stofu. Eldhús og stofa er eitt stórt opið og bjart rými.
Svefnherbergin eru öll parketlögð og skápar eru í þeim öllum.  
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á veggjum að hluta, þar er falleg hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.
Í þvottahúsi/geymslu eru flísar á gólfi, þar er vegleg hvít innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaskur í borði.
Í bílskúr er epoxymálning á gólfi, hurðaopnari og hiti í gólfi.

*Endaraðhús með þremur rúmgóðm herbergjum
*Hiti er í öllum gólfum hússins.
*Timburverönd er á baklóð, afgirt að mestu. Lagnaleið fyrir heitan pott. 
*Innkeyrsla er malbikuð og lóð er grasilögð.
*Lagnaleið að framanverðu fyrir rafmagnshleðslu.

Húsið er timburhús á steyptum sökkli og botnplötu. Útveggir eru timburveggir með einangrun og húsið er klætt að utan með standandi timburklæðningu. Þak er byggt úr timbursperrum og klætt bárujárni. 

Allar nánari upplýsingar veita:

Brynjar lfs  / brynjar@studlaberg.is / 896-5464
Halldór lfs  /  dori@studlaberg.is   /  863-4495
Haraldur lfs /  halli@studlaberg.is /  661-9391

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Stuðlaberg
77.900.000 kr.537 þ./m²
+13,1% á 3 árum
20. desember 2023Fyrsta sala
68.900.000 kr.475 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skerjabraut 17

245 Sandgerði
TegundRað-/parhúsStærð145 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
77.900.000 kr.537 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2528902Fasteignamat77.350.000 kr.Brunabótamat81.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑