fasteignasölur.is
Bogabraut 16
Opið hús 6. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 33

Um eignina

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Bogabraut 16, 245 Sandgerði. Eignin samanstendur af Anddyri, eldhús og stofa í opnu rými, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, gestasalerni, þvottahúsi og bílskúr. Eignin er skráð 161m2 og þarf af er bílskúr 29m2.

Nánari upplýsingar veita:
Dísa Edwards Löggiltur Fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur disa@allt.is
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur Fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur jona@allt.is

 
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Gengið er inn í flísalagða forstofu með góðum og rúmgóðum fataskápum.
Stofa og eldhús: Frá forstofu er gengið inn í bjart og rúmgott alrými þar sem stofa og eldhús mynda eina heild. Eldhúsið er rúmgott með fallegri innréttingu, góðri eyju og tvöföldum ísskáp. Flísar eru á gólfi. Úr stofu er útgengt á stóran pall með hárri skjólgirðingu sem skapar gott skjól og notalega útiaðstöðu.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll með parketi á gólfum. Hjónaherbergið er rúmgott með stórum rennihurðafataskáp.
Baðherbergi: Rúmgott og fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi, falleg innrétting og upphengt salerni.
Gestasalerni: Á gangi er gestasalerni með innréttingu og salerni.
Þvottahús: Þvottahús er með góðri innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfi.
Bílskúr og geymsla: Innangengt er úr húsinu í bílskúr og inn af honum er geymsla.
Gólfhiti er í húsinu.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · ALLT fasteignasala
79.900.000 kr.496 þ./m²
+81,6% á 6 árum
12. júní 2020Þinglýstur kaupsamningur
44.000.000 kr.273 þ./m²
+61,3% á 8 árum
16. október 2012Þinglýstur kaupsamningur
27.279.000 kr.169 þ./m²
+22,9% á 5 árum
11. maí 2007Fyrsta sala
22.200.000 kr.138 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bogabraut 16

245 Sandgerði
TegundEinbýlishúsStærð161 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
79.900.000 kr.496 þ./m²
Byggingarár2005InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2285375Fasteignamat79.100.000 kr.Brunabótamat91.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 62, 230 ReykjanesbærSími560-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑