fasteignasölur.is
Sóltún 16
1 af 26

Um eignina

Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á neðstu hæð með tvennum yfirbyggðum svölum og stæði í bílageymslu
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 97,0 m² rúmgóða 3ja herbergja íbúð á neðstu hæð í vönduðu og vel reknu lyftuhúsi við Sóltún 16 í Reykjavík. Húsið er byggt árið 2006 og íbúðinni fylgja tvennar yfirbyggðar svalir, samtals 14,6 m² sem eru ekki innifaldar í skráðum fermetrafjölda eignarinnar, auk sérgeymslu og stæðis í lokaðri bílageymslu.

-  Tvennar yfirbyggðar svalir
-  Stæði í lokaðri bílageymslu
-  Sér þvottahús 
-  Íbúðin getur verið laus til afhendingar fljótlega


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Íbúðin er skráð 97,0 m² samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 88,2 m² og sérgeymsla 8,8 m². Að auki eru tvennar yfirbyggðar svalir, samtals 14,6 m².
Húsið er 32ja íbúða fjölbýli með lyftu (Sóltún 14–18). Húsfélagsgjöld eru 35.600 kr. á mánuði og innifela hita, húseigendatryggingu, almennan rekstur, rafmagn í sameign, ræstingu sameignar, rekstur lyftu, bílakjallara og framlag í framkvæmdasjóð. 

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með fataskápum.
Stofa og borðstofa mynda bjart rými með útgengi á yfirbyggðar svalir til vesturs.
Eldhús með innréttingu með góðu skápaplássi og flísalagt á gólfi.
Sér þvottahús með hillum og flísalagt á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö. Í hjónaherbergi eru fataskápar og útgengi á yfirbyggðar svalir til suðausturs.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum, með góðri innréttingu, sturtu, handlaug og salerni.
Svalirnar eru tvennar og yfirbyggðar, samtals 14,6 m², úr stofu til vesturs og úr hjónaherbergi til suðausturs. Svalirnar eru ekki innifaldar í skráðum fermetrafjölda eignarinnar og skapa skemmtilega viðbót við íbúðarrýmið.
Sérgeymsla 8,8 fm, fylgir íbúðinni.
Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Gólfefni: parket er á allri íbúðinni nema eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi, sem eru flísalögð.

Sameign og umhverfi:
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla og innangengt er úr bílageymslu upp í stigahús. Íbúðin er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík (105), í grónu og rólegu hverfi. Í sömu götu er Waldorfskólinn Sólstafir, bæði leik- og grunnskóli, og stutt er í Laugardalinn með sundlaug, útivist og íþróttaaðstöðu. Öll helsta þjónusta, verslanir og veitingastaðir eru í göngufæri, greiðar samgöngur í allar áttir og örstutt í miðborgina og Borgartún.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Háborg fasteignasala
84.900.000 kr.875 þ./m²
+204,3% á 20 árum
14. ágúst 2006Fyrsta sala
27.900.000 kr.288 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sóltún 16

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð97 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
84.900.000 kr.875 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2284436Fasteignamat86.100.000 kr.Brunabótamat63.560.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑