1 af 50
Um eignina
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
94,5fm heilsárshús auk 19fm gróðurhúss og 26fm garðskúrs á 4724fm eignarlóð í Reykjaskógi í Bláskógabyggð.
Eignarlóðin við hliðina, Rjúpnavegur 2, 2475fm að stærð fylgir með í kaupunum.
Hitaveita, heitur pottur, gróðurhús, ræktunarkassar, geymsluskúr og grasflatir fyrir ferðavagna.
Komið er inn í netta forstofu með hengi og parketi á gólfi. Þvottahús/geymsla inn af henni.
Gangur inn og stigi þar strax upp á annað svefnloftið af tveimur, svefnpláss þar fyrir allt að sex manns í þremur rúmum. Niðri eru tvö svefnherbergi, annað búið tveimur rúmum og fataskáp en tvöfaldur svefnsófi í hinu og kommoða fyrir föt. Á ganginum eru einnig skápar og baðherbergið þar fyrir innan. Það er panelklætt, sturtubotn og hengi fyrir, heimagerður handklæðaofn, klósett og vaskur á skáp og speglaskápur yfir, harðparket á gólfi. Innst á ganginum er svo óráðstafað rými eða geymsla og stigi þaðan upp á hitt svefnloftið sem er með panel í lofti og parketi á gólfi og svefnplássi fyrir þrjá í jafn mörgum rúmum. Aðal rými hússins, stofa og eldhús eru með uppteknu lofti, og gengt út á pall úr stofu. Eldhúsið stúkað af með skápum, nýleg innrétting og tæki þar sem öll fylgja við sölu eftir nánara samkomulagi sem og húsgögn og flestir innanstokksmunir. Veggir og loft í stofu er málaður panell og harðparket á gólfi.
Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, hurðir og gluggar úr tré og bárujárn á þaki.
Þá er pallur með skjóli yfir að hluta og hitara þar uppi, og heitur pottur við skjólvegg. Rétt við húsið er ágætt gróðurhús en fjær geymsluskúr og ræktunarkassar, við hlið lóðarinnar Rjúpnavegur 2 sem fylgir við sölu, en þar hafa verið útbúnar tvær grasflatir fyrir ferðavagna. Lóðirnar annars þéttvaxnar trjám og víði og svæðið er lokað af með öryggishliði.
Húsið hefur verið í útleigu síðustu misseri en samþykki sveitarfélagsins á þeirri starfsemi liggur ekki fyrir.
Virkilega áhugaverð eign fyrir stóra fjölskyldu eða vinahóp.
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 loftur@husfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
55.000.000 kr.394 þ./m²
−8,2% á 2 árum
21. mars 2025Fyrsta sala
59.900.000 kr.429 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hólavegur 1
806 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð139,7 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.1
55.000.000 kr.394 þ./m²
Byggingarár1991InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2205405Fasteignamat56.900.000 kr.Brunabótamat75.930.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 50 myndir
Upp ↑
















































