fasteignasölur.is
Hafnarbraut 12a
Opið hús 8. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 44

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 2-3 herbergja glæsilega og vandaða íbúð í nýlegri lyftublokk á 2.hæð ásamt stæði í bílageymslu við  við Hafnarbraut 12A í Vesturbæ Kópavogs. Stórar svalir sem snúa til suð-vesturs sem snúa inn í i fallegan inngarð. Sérinngangur frá svalagangi. 
 
Nánari lýsing eignar.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Inn af forstofu er baðherbergi, gólf er flísalagt ásamt hluta veggja. Þvottavéla aðstaða er á baðherbergi og skápar upp í loft. Hvít baðinnrétting er með góðu skúffuplássi, með hvítri borðplötu og niðurfeldri handlaug, sturta er með glerskilrúmi, vegghengt salerni. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Eldhús, borðstofa, stofa með parketi á gólfi, eldhúsinnrétting er hvít með stál höldum og nær upp í loft, AEG bakarofn í vinnuhæð og innbyggður ísskápur, hvít eyja með  helluborði, stál háfur/vifta með ljósi er yfir eyju. Eldhús er opið við borðstofu og stofu. Frá stofu er gengið út á stórar skjólgóðar svalir. 
Hjónaherbergi með parketilögðu gólfi með hvítum fataskápum á heilum vegg.
Geymsla ( en notað sem barnaherbergi ) með parketi á gólfi og stórum glugga með opnanlegu fagi.
Stæði í bílageymslu merkt N 34 
 

Þetta er afar falleg vel skipulögð íbúð á vinsælum stað í vesturbæ Kópavogs. Brikk bakarí og Brasserie Kársnes eru í næsta húsi. Örstutt frá sjónum og í göngufæti við Sky lagoon böðin. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

 

Hafnarbraut 12a

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð79,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
73.900.000 kr.931 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2510796Fasteignamat74.100.000 kr.Brunabótamat51.060.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑